Bandaríski útivistarvöruframleiðandinn Patagonia veitir ómetanlegan stuðning við baráttu íslenskra náttúruverndarsamtaka gegn sjókvíaeldi á laxi á iðnaðarskala.
Stofnandi og eigandi Patagonia um árabil, Yvon Chouinard, er mikill Íslandsvinur.
Þegar hann kom hingað síðast, sumarið 2022, hitti hann Guðna, þáverandi forseta okkar, en líka Höllu Tómasdóttur sem var kjörin forseti tveimur árum síðar. „Ég fæ satt að segja ekki oft stjörnur í augun en það gerði ég þegar ég nýlent á Íslandi rakst á Yvon Chouinard, stofnanda og eiganda Patagonia – Þessi maður hefur verið mér og mínu fólki svo mikil fyrirmynd í gegnum tíðina að þetta var alveg á pari við að hitta Bono!!!“ sagði Halla um óvæntan fund þeirra.
Vísir fjallar um tölvupóstherferðina:
Alls hafa 4.470 manns frá 63 löndum sent ráðherrunum Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, og Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfisráðherra, 8.940 tölvupósta með hvatningu um að vernda náttúru og lífríki Íslands fyrir skaðanum sem sjókvíaeldi á laxi í opnum netapokum óhjákvæmilega veldur.
Þetta staðfestir Lauren Everett, samskiptastjóri Patagonia í Evrópu, við fréttastofu. Tölvupóstarnir eru hluti af stuðningi bandaríska útivistarvöruframleiðandans við baráttu íslenskra náttúruverndarsamtaka gegn sjókvíaeldi á laxi á iðnaðarskala.
Stofnandi og eigandi Patagonia um árabil, Yvon Chouinard, er mikill Íslandsvinur og hefur komið reglulega til landsins frá árinu 1960. Þegar hann kom síðast, sumarið 2022, fór hann á fund Guðna Th. Jóhannessonar þáverandi forseta, til að vekja athygli hans á skaðanum sem sjókvíaeldi á laxi veldur.
…Chouinard er orðinn 86 ára hefur dregið sig í hlé frá daglegum störfum en brennur heitt fyrir vernd náttúru jarðar.
„Sem fluguveiðimaður hef ég séð með eiginaugum hvernig íslenskar ár eru að deyja hraðar en ég hefði nokkurn tíma getað ímyndað mér. Nú hefur Ísland tækifæri til að sýna heiminum að hægt er að snúa þessari skaðsemi við með banni á opnu sjókvíaeldi á laxi,“ er haft eftir Chouinard í tilkynningu frá Patagoniu.