ÍSLENSKI NÁTTÚRUVERNDARSJÓÐURINN
Ísland er eitt síðasta vígi villta Norður-Atlandshafslaxins.
Laxeldi í opnum sjókvíum ógnar öllum villtum laxastofnum
á Íslandi.
Mynd: Einar Falur Ingólfsson
Kynnið ykkur málið
Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA
ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.
Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:
Fréttir
„Ísland, landið sem á nú engan að“ – Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar
Við mælum með þessari kraftmiklu grein Steinunnar Ólínu. Það eina sem við höfum við viljum hnykkja á er að þjóðin, sem Steinunn Ólína skrifar meðal annars um, er að mikill meirihluti her á móti opnu sjókvíaeldi á laxi. Um 65 prósent þjóðarinnar er neikvæð í garð þessa...
Hópuppsagnir sjókvíaeldisfyrirtækjanna minna okkur á að hagsmunir hlutafanna ganga ævinlega fyrir
Sjókviaeldisfyrirtækin eru ekki í neinni góðgerðarstarfsemi. Þar er hagur hluthafanna alltaf í fyrsta og síðasta sæti. Ekki starfsmanna, byggðarlaganna þar sem þau starfa, og alls ekki umhverfisins, lífríkisins né velferð eldisdýranna. Vísir fjallaði um málið: Alls...
Nýútkomin bók með rannsóknum á plastmengun af völdum norsks sjókvíaeldis
Í nýrri bók, Managing Marine Plastic Pollution in Norway, kemur fram að norskt sjókvíeldi á laxi stendur fyrir um „tífalt meira plastúrgangi en fiskveiðar.“ Lesendur þessarar síðu kannast vel við upplýsingar um gríðarlega plastmengun í sjókvíaeldi. Hvergi er tekið á...
Einhverjar spurningar?
Hafðu samband
Skilmálar og persónuvernd
Umhverfissjóðurinn The Icelandic Wildlife er ekki rekinn í ágóðaskyni ( non – profit ).
Hann er sjálfseignarstofnun og starfar samkvæmt lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir.
Íslenski náttúruverndarsjóðurinn er félag í:






