Eins og lesendur þessarar síðu vita marar gengi hlutabréfa sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur í hálfu kafi eftir látlaus áföll árum saman.

Austurfrétt segir frá því að Norðmennirnir í eigendahópnum vilji losna útúr þessum skelfilega rekstri en gengi hlutabréfa Kaldvíkur er nú tæpar 4 norskar krónur á hlut eða 14% af því sem það var um áramótin 2024/25.

Sjávarútvegsfyrirtækið Ísfélagið í Vestmannaeyjum fjárfesti fyrir milljarða í Kaldvík áður en gengið hrundi og situr nú uppi með margra milljarða króna óinnleyst tap í bókum sínum.

Kaldvík tapaði í fyrra 7 milljörðum og 122 milljón króna, sem jafngildir 19,5 milljónum hvern einasta dag ársins.

Í frétt Austurfréttar segir m.a.:

…Í byrjun árs 2025 einfaldlega hrundi verðmæti bréfanna eftir að varað var við afkomu, meðal annars vegna stórfellds seiða- og fiskadauða í köldum sjó í nóvember og desember 2024. Síðan hefur engin viðspyrna náðst og er gengið nú tæpar 4 norskar krónur á hlut eða 14% af því sem það var um áramótin 2024/25.

Lífmassinn, sem að uppistöðu til eru fiskar í sjó, er helsta eign félagsins og þar með veð gagnvart lánastofnunum. Það hafði því slæm áhrif á lánin þegar fiskarnir drápust umvörpum.

Aðaleigandinn þarf að leggja til lán
Kaldvík hefur undanfarna mánuði verið í viðræðum við lánadrottna um undanþágur frá skilyrðum í lánasamningum og í fyrra var meðal annars hlutafé þess aukið. Félagið tilkynnti í lok mars að samkomulag hefði náðst. Það felur í sér að fallið er frá skilyrðum um afgang frá rekstri (EBITDA) og krafa um lausafé félagsins er lækkuð úr 10 milljónum evra í 5 milljónir. Skuldir félagsins, sem bera vexti, námu 185 milljónum evra í lok síðasta árs.

Um leið var gerð krafa um að aðaleigandinn, sem er Måsøval, láni félaginu 20 milljónir evra, eða um 218 milljónir norskra króna, sem aftur eru um þrír milljarðar íslenskra króna. Það er gert í gegnum fjárfestingafélag fjölskyldunnar, Heimstø, aðaleiganda Austur Holding, sem á 57% hlut í Kaldvík. Hinn eigandi Austur Holding er Ísfélag Vestmannaeyja með um 30% hlut.

Yfirtaka norskir risar Kaldvík?
Tilkynning um samninga við lánadrottna var send út nokkrum dögum að tilkynnt var um breytingar hjá Heimstø sem ætlar að yfirfara fjárfestingasafn sitt. Norskir fjölmiðlar gera því í skóna að fjölskyldan kunni með öllu að selja sig út úr fiskeldi. …

Þessi tilkynning hækkaði gengið í fjárfestingafélögum fjölskyldunnar. Enn bættist síðan í vangavelturnar í byrjun síðustu viku þegar ljóst varð að aðaleigendur Salmar, Witzøe-fjölskyldan, væru byrjaðir að kaupa sig inn í fyrirtæki Måsøval. Í Noregi hefur verið spurt hvort það sé fyrsta vísbendingin um að Salmar ætli sér að kaupa fiskeldi Måsøval. Salmar kemur frá Frøya, líkt og Måsøval, og er næststærsta laxeldisfyrirtæki heims á eftir Mowi, sem á í Arctic Fish á Vestfjörðum. …