Sníkjudýrið kudoa hefur fundist i fyrsta skipti í þorski við Noreg. Sníkjudýrið gæti orðið að meiri háttar vandamáli nái það útbreiðslu meðfram strandlengjunni segir í meðfylgjandi frétt.

Mowi, móðurfélag Arctic Fish á Vestfjörðum, hefur glímt við þetta skæða kvikindi i sjókvíaeldi sínu við Kanada

Þekkt er hvernig sjókvíaeldi á lax magnar með margföldum hætti upp sníkjudýr og sjúkdóma vegna gríðarmikils fjölda eldislaxa sem haldið er á þröngu svæði.

Þannig er til dæmis sjókvíaeldi á laxi ekki síður eldi á sníkjudýrinu laxalús sem verður til í kvíunum í miljón sinnum meira magni en er mögulegt við náttúrulegar aðstæður.

Það væri eftir öllu að hatrömm barátta SFS fyrir hönd norsku sjókvíaeldisfyrirtækjanna yrði banabiti íslenska þorskstofnsins. Mikilvægustu uppeldisstöðvar hans eru í Ísafjarðardjúpi og fleiri vestfirskum fjörðum.

Fiskifréttir greina frá þessari uggvænlegu þróun.

Sníkjudýr sem nefnist kudoa hefur fundist í þorski við Noreg í fyrsta sinn. Frá þessu segir Fiskeribladet norska í dag.

Þar segir að vísindamennirnir Arne Levsen og Lucilla Giulietti hjá Sjávarrannsóknastofnun Noregs hafi fundið kudoa í þorski nærri ströndinn við Helgeland. Sníkjudýrið gæti orðið að meiri háttar vandamáli nái það útbreiðslu meðfram strandlengjunni.

Kom afar mikið á óvart
Haft er eftir Levsen, sem er sníkjudýrafræðingur, að þessi uppgötvun sem gerð hafi verið í fyrrahaust hafi komið mjög mikið á óvart. Þetta sé í fyrsta sinn sem kudoa finnist í strandþorski. „Við þurfum að vita aðeins meira um hversu útbreitt þetta er áður en við hringjum viðvörunarbjöllum,“ er haft eftir Levsen.

Kudoa er erfitt sníkjudýr viðfangs. Engin leið er sögð vera að koma auga á það og sjómenn eða aðrir geti ekkert gert til að hindra að kudoa berist í fisk.

Lífsferilinn ekki þekktur
„Það er snjallt sníkjudýr sem blekkir hýsilinn til að skipta sér ekki af því. Það er fyrst þegar fiskurinn er dauður sem það verður virkt,“ er áfram haft eftir Levsen sem kveður vísindamenn ekki þekkja lífsferil kudoa þótt einhverjar rannsóknir hafi þegar verið gerðar í Kanada þar sem fiskeldisrisinn Mowi hafi átt í erfiðleikum með kudoa í laxi. Erfitt sé að bregðast við á meaðan lífsferilinn sé enn ekki þekktur. …