Tölur sem hafa ekki sést áður birtust í vikunni á Mælaborði fiskeldis á vefsíðu Matvælastofnunar (MAST). Laxalús fjölgaði sér á eldislöxum í sjókvíum á Vestfjörðum milli mánaða frá desember til janúar en lúsin hefur hingað til í versta falli verið talin fara í dvala yfir háveturinn.

Lengi vel héldu sérfræðingar MAST að laxalús dræpist í sjókvíunum á veturna. Þegar það gerðist svo veturinn 2022 til 2023 að hún þraukaði á eldislöxunum, en þó án þess að fjölga sér, viðruðu þeir kenningar um að komið væri fram kuldaþolið afbrigði, afleiðing stökkbreytinga við kjöraðstæður vegna gríðarlegs magn af lús í kvíunum ár eftir ár. Sjókvíeldistfyrirtækin framleiða margalt meira magn ef þessu skaðlega sníkjudýri en af eldislaxi.

Nú þegar laxalúsin er farin að fjölga sér og ná kynþroska að vetri til er eitthvað alveg nýtt að gerast en magn kvenlúsa á eldislöxum hefur ekki mælst hærra í rúm tvö ár en nú í janúar.

Þetta er grafaralvarleg staða. Lúsin setur velferð eldislaxana í mikla hættu en líka villta laxastofna, sjóbleikju og sjóbirting. Lúsafjöldinn er svo gríðarlegur að hún finnst í miklu magni í kringum sjókvíarnar og berst langt með hafstraumum í margfalt meira magni en gæti gerst við náttúrulegar aðstæður.

Skaðinn magnast svo upp, því komnir eru fram laxalúsastofnar sem eru með mikið þol gegn þekktum lyfjum og eitri eftir stöðuga notkun þessara kemísku efna í sjókvíaeldisiðnaðinum árum saman.

Í tveimur nýjustu fundargerðum Fisksjúkdómanefndar, sem er MAST og stjórnvöldum til ráðgjafar, eru bókaðar þungar áhyggjur af mikilli útbreiðslu fiski- og laxalúsar í sjókvíum með eldislax við landið:

  1. „Fisksjúkdómanefnd vill þó árétta alvarlega stöðu vegna þeirra viðvarandi vandamála og neikvæðrar þróunar í útbreiðslu fisk- og laxalúsar í eldi og vaxandi lyfjaónæmis … Jafnframt er brýnt að fyrirtækin axli aukna ábyrgð á forvörnum gegn lús, m.a. með aukinni notkun mekanískra aðferða í stað lyfjameðhöndlunar, til að undirbúa greinina betur fyrir næstu ár og til framtíðar.“
  2. „Fisksjúkdómanefnd telur verulegt áhyggjuefni hvernig þróun fiski- laxalúsar hefur verið nú og undanfarin ár m.a. í ljósi þess að hætt verður framleiðslu á lúsalyfinu Alpha Max vet., á næsta ári.“

Engin opinber viðbrögð hafa komið fram við þessum bókunum Fisksjúkdómanefndar. Hvorki af hálfu stjórnenda MAST né frá atvinnuvegaráðuneytinu.

Hér er vísindagrein um hvernig lyfja- og eiturefnaþolið afbrigði laxalúsar hefur náð útbreiðslu í sjókvíum við Noreg, Skotland, Ísland og almennt í þessum skaðlega iðnaði þar sem hann er stundaður við Norður-Atlanshafið. Í úrdrætti greinarinnar segir:

Nothing lasts forever, including the effect of chemicals aimed to control pests in food production. As old pesticides have been compromised by emerging resistance, new ones have been introduced and turned the odds back in our favour. With time, however, some pests have developed multi-pesticide resistance, challenging our ability to control them. In salmonid aquaculture, the ectoparasitic salmon louse has developed resistance to most of the available delousing compounds. The discovery of genetic markers associated with resistance to organophosphates and pyrethroids made it possible for us to investigate simultaneous resistance to both compounds in approximately 2000 samples of salmon lice from throughout the North Atlantic in the years 2000–2016. We observed widespread and increasing multiresistance on the European side of the Atlantic, particularly in areas with intensive aquaculture. Multiresistant lice were also found on wild Atlantic salmon and sea trout, and also on farmed salmonid hosts in areas where delousing chemicals have not been used. In areas with intensive aquaculture, there are almost no lice left that are sensitive to both compounds. These results demonstrate the speed to which this parasite can develop widespread multiresistance, illustrating why the aquaculture industry has repeatedly lost the arms race with this highly problematic parasite.

Myndin sem hér fylgir sýnir ástand eldislaxa í sjókvíum Arnarlax þegar var verið að færa þá til slárunar fyrir nokkrum árum. Við fengum hana senda frá starfsmanni sem ofbauð ástandið.