Í byrjun sumars fór í loftið þessi frábæra síða, sem hér fylgir, með fjölda fræðigreina og ritrýndra rannsókna um áhrif sjókvíaeldis á villta laxastofna í Norður Atlansthafi.

Að baki verkefninu standa baráttusystkini okkar hjá Atlantic Salmon Federation (ASF) og North Atlantic Salmon Fund (NASF). ASF er með höfuðstöðvar í New Brunswick í Kanada og NASF var stofnað 1989 af frumkvöðlinum og baráttumanninum Orra Vigfússyni. Sjóðurinn teygir starfsemi sína nú frá Íslandi til Noregs, Bandaríkjanna og víðar og er auðvitað náinn samstarfsfélagi okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum.

Á Salmon Info er farið á dýptina í efnisumfjölluninni en með aðgengilegum og skýrum hætti. Að baki hverri grein er ítarleg heimildaskrá. Við mælum eindregið með því að skoða síðuna.

Þekking Íslendinga á málefninu er almennt afar góð, einsog sést best á því hversu eindregin andstaða er meðal þjóðarinnar við þennan skaðlega og grimmdarlega iðnað sem sjókvíaeldi á laxi er. Vitundarvakning er að verða meðal almennings í öðrum löndum. Salmon Info mun leika mikilvægt hlutverk í að auka þekkingu fólks á efninu.

Salmon.info