Kæru vinir! Við erum hluti af þeim tveimur þriðju hluta þjóðarinnar (65,4%) sem eru neikvæð gagnvart sjókvíaeldi með lax. Aðeins 13,9% landsmanna eru jákvæð í garð þessa mengandi og grimmdarlega iðnaðar með dýr, en 20,6% hafa ekki mótað sér skoðun.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun Gallup.
Andstaðan við sjókvíaeldi er afgerandi:
- í öllum kjördæmum
- meðal kjósenda allra flokka
- í öllum aldurs- og tekjuhópum
- meðal karla og kvenna
Andstaðan hefur ekki mælst hærri í könnunum Gallups, fleiri vilja bann en áður og svör þegar spurt var um aðstæður eldislaxanna sýna að fólk er orðið vel meðvitað um að þá skuggahlið iðnaðarins, en 61,7% telja velferð eldislaxana slæma í sjókvíaeldi.
Þá vilja 59,5% beinlínis banna sjókvíaeldi í fjörðum landsins, sem er þrisvar sinnum fleiri en þau 18% sem vilja leyfa það áfram.
Í frétt Vísis um könnina segi m.a.:
Andstaðan hefur ekki mælst hærri í könnunum Gallups, fleiri vilja bann en áður og þessi nýja spurning um velferðarvandann í sjókvíaeldi sýnir að fólk er orðið vel meðvitað um að þá skuggahlið iðnaðarins.
Þetta segir Jón Kaldal en könnunin er unnin að ósk Íslenska náttúruverndarsjóðsins. …
Jón fagnar niðurstöðu könnunarinnar og telur hana meðal annars lýsa því að auglýsingaherferð SFS nái ekki máli.
Jón telur engan vafa leika á um að staða baráttu gegn laxeldi í opnum sjókvíum sé ótrúlega sterk. En óttast hann ekki að þeir sem eru hlynntir sjókvíaeldi muni afskrifa niðurstöðurnar á altari þess að könnunin er gerð að undirlagi Íslenska náttúruverndarsjóðsins.
„Nei. Ég hef engar áhyggjur af því. Gallup vinnur könnunina eftir sinni viðurkenndu vísindalegu aðferðarfræði. Því til viðbótar hafa önnur könnunarfyrirtæki líka kannað afstöðu þjóðarinnar í þessum efnum að eigin frumkvæði og niðurstöðurnar nánast eins. Fjórum til fimm sinnum fleiri eru á móti þessum skaðlega iðnaði en styðja hann,“ segir Jón.
..
Neikvæðni í garð sjókvíaeldis er yfir 50 prósent meðal stuðningsfólks allra flokka nema Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, en þar er þó andstaðan mun meiri en stuðningurinn:Sjálfstæðisflokkur
43% neikvæð
22% jákvæð
35% hvorki néFramsóknarflokkur
39% neikvæð
32% jákvæð
29% hvorki néMest er andstaðan meðal þeirra sem styðja Pírata og Samfylkinguna:
Píratar
97% neikvæð
0% jákvæð
3% hvorki néSamfylkingin
78% neikvæð
11% jákvæð
11%% hvorki né…
Jón segir niðurstöðurnar sérlega gleðilegar í ljósi þess að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hefur rekið nokkuð harða ímyndarauglýsingabaráttu að undanförnu.
„SFS er líklega búið að láta framleiða og birta sjónvarps- og netauglýsingar sem kosta um það bil tvöfalt það sem kostar að reka Íslenska náttúruverndarsjóðinn á ári. Ánægjulegt að fá staðfest að þjóðin sér í gegnum þennan glansmyndar áróður SFS,“ segir Jón.