Þetta kemur ekkert á óvart. Við höfum margsinnis bent á að eigendur sjókvíaeldisfyrirtækjanna bera aðeins hag hluthafanna fyrir brjósti.

Við höfum traustar heimildir fyrir því að Arctic Fish freistaði þess að leggja undir sig allt húsnæði Blábankans á Þingeyri en fékk ekki þrátt fyrir hótanir um að yfirgefa annars bæinn, sem nú er að gerast.

Arctic Fish leigði aðstöðu í sama húsi og Blábankinn gegn vægu gjaldi.

Blábankinn er nýsköpunarmiðstöð og samvinnurými og er þar meðal annars haldið utan um verkefnið Athafnaklúbbur Þingeyrar og markaðssetning svæðisins.

Það er bláeygur barnaskapur að trúa því að velferð íbúa þorpanna skipti eigendur sjókvíaeldisfyrirtækjanna nokkru máli. Þessi saga hefur öll gerst í Noregi áður. Störfin miklu færri en var lofað og fjármunir teknir út úr félögunum annarsstaðar.

Vísir fjallar um viðbrögð Þingeyringa við ákvörðun Arctic Fish:

Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, þingmaður Samfylkingar og formaður íbúasamtakanna Átaks, hverfisráðs Ísafjarðarbæjar á Þingeyri, segja það sorglegt og mikið áfall fyrir íbúabyggð á Þingeyri að flytja eigi fóðurstöð Arctic Fish á Ísafjörð. Alls starfa níu í fóðurstöðinni.

Greint var frá því í gær að Arctic Fish hefði ákveðið að opna nýja fóðurmiðstöð á Ísafirði í haust. Í frétt Bæjarins besta í gær kom fram að fóðurmiðstöðin myndi þá sameinast höfuðstöðvum í Sindragötu á Ísafirði og að öllu starfsfólki hafi verið boðið að halda sínu starfi á nýjum stað auk þess sem boðið verði upp á ferðir á vinnutíma fyrir starfsfólk.

Flutningur fóðurmiðstöðvarinnar hefur þó víðtækari áhrif en bara að störfin séu flutt. Meðal þeirra sem starfa hjá Arctic Fish eru tveir starfsmenn sjúkrabifreiðarinnar í bænum, starfsmaður slökkviliðs og meðlimur björgunarsveitarinnar í bænum.

Í pósti sem Guðrún sendi á þingmenn, ráðherra og bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar í gær segir hún lokunina eflaust eiga eftir að hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir byggðina á Þingeyri.

„Þingeyri var flokkuð á sínum tíma sem brothætt byggð og Byggðastofnun lagði heilmikinn pening í verkefni til að reyna að efla byggðina, svo loksins þegar byggðin er aðeins að rétta úr kútnum þá á að reyta af okkur fjaðrirnar. Ég og við hér á Þingeyri skiljum það vel að fyrirtæki vilji hagræða í rekstri, en með þessari aðgerð missum við 2 af 4 útkalls-aðilum sjúkrabifreiðar sem hér er staðsett, sem er mjög alvarlegt.“

…Arna Lára Jónsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og þingmaður Samfylkingarinnar, segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum að heyra þessar fréttir. Hún verði sjálf í þinginu á mánudag þegar íbúafundurinn fer fram en hefði annars séð fyrir sér að mæta.

„Það verður að huga að samfélagslegri ábyrgð. Þetta er búið að vera ofboðslega góður vinnustaður. Það hefur ekki verið mikil fjölbreytni í störfum á Þingeyri en þarna var komið með góð störf sem hentuðu líka konum. Þetta eru gríðarleg vonbrigði og ég er ekki mjög kát með þessa ákvörðun fyrirtækisins.“