Hver fréttin rekur nú aðra í norskum fagmiðlum af hrikalegum rekstri Kaldvíkur. Gríðarlegur dauði hefur verið í sjókvíum fyrirtækisins á Austfjörðum vegna þörunga, sníkjudýra og vetrarsára.
Aðeins þrír af hverjum tíu eldislaxöxum sem lifðu til slátrunar fóru í efsta gæðafflokk. Mun það líklega stappa nærri heimsmeti í vondri framleiuðslu á eldislaxi.
Rekstrartap Kaldvíkur síðustu fimmtán mánuði nemur um tíu milljörðum króna. Ísfélagið í Vestmannaeyjum, sem á stóran hlut í Kaldvík, lánaði félaginu í gegnum eignarhaldsfélagið Austur Holding AS 10 milljón evrur í vor þar sem aðrar lánalínur Kaldvíkur hafa lokast.
Óinnleyst tap Ísfélagsins vegna fjárfestinga í Kaldvík nema rúmlega fimm milljörðum króna.
Norski fagmiðillinn Kyst fjallar um erfiðleika Kaldvíkur (áskriftar krafist).