Norsk stjórnvöld hafa lýst því yfir að þau ætli að neyða sjókvíaeldisfyrirtækin til að bæta velferð eldislaxa í sjókvíum og tryggja þannig að dauðinn í kvíunum verði ekki yfir 5% á ári, eða innan við tíu prósent í hverri eldislotu, sem varir yfirleitt í um tvö ár.

Á sama tíma vill Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra fara í þveröfuga átt hér á landi. Í drögum hennar að frumvarpi til laga um lagareldi er hvergi reynt að skylda fyrirtækin til að laga hrikalegan velferðarvanda í sjókvíaeldi heldur fá þau sjálf að ákveða „vænt afföll“ á hverju ári.

Í ársreikningum og tilkynningum þessara fyrirtækja til norsku kauphallarinnar kemur fram að „vænt“ afföll þeirra eru um 20% prósent á ári, sem þýðir tæp 40% í hverri eldislotu.

Með öðrum orðum þá vill Hanna Katrín leyfa sjókvíeldisfyrirtækjunum að láta um fjórum sinnum fleiri eldislaxa drepast en norsk yfirvöld.

Auðvitað eru norsku risarnir farnir að berjast gegn því að bæta velfarðarvandann heima fyrir, einsog segir frá í meðylgjandi frétt.

Hér þurfa þeir ekki að hafa neinar áhyggjur því avinnuvegaráðherra er með þeim í liði alla leið.

Hugsið ykkur þetta ískalda miskunnarleysi gagnvart eldisdýrunum.

Intrafish (áskriftar krafist) fjallar um laxadauða í norskum sjókvíum og markmið stjórnvalda:

Preliminary figures released Thursday by the Norwegian Veterinary Institute show mortality in Norwegian salmon pens fell for the third year in a row in 2025, to 14.2 percent.

At the same time, politicians have set an ambition of reducing mortality to around 5 percent.