Alvarlegir smitsjúkdómar, laxalús og önnur skæð sníkjudýr og gríðarleg afföll eldisdýra.
Þetta er sagan endalausa af sjókvíeldi á laxi.
Dýravelferðarlöggjöfin í kringum þennan iðnað er sniðin að hagsmunum eigenda fyrirtækjanna og nánast ekkert tillit tekið til velferðar eldislaxanna. Þetta er skammarleg starfsemi.
Í umfjöllun Fisikfrétta segir m.a.:
Smitandi ILA-vírus hefur verið staðfestur í sjókví norska laxeldisfyrirtækins Nordlaks Havbruk í Dragnes í Hadsel.
Að því er segir á salmonbusiness.com kom þetta í ljós í kjölfar aukinnar dánartíðni í einni kví Nordlaks. Sýni hafi verið tekin 28. maí og 5. júní. Von sé á lokagreiningu sýnanna síðar í þessari viku en Nordlaks hafi þegar ákveðið og sé byrjað á að slátra öllum laxinu á svæðinu.
…
Laxinn í Dragnes var settur út haustið 2024 og er nú að meðaltali 850 grömm. Um það bil 1,9 milljón laxa eru í stöðinni.