Þetta eru tveir af 24 eldislöxum sem voru fjarlægðir úr Hrútafjarðará í dag. Þessir skelfilegu áverkar á hausnum á vesalings fiskunum eru eftir laxalús. Þeir hafa verið étnir inn að beini.

Þetta segir okkur að lúsaástandið í sjókvíunum hefur verið hrikalegt þegar þeir sluppu.

Hverslags fólk fer svona með eldisdýr? Af hverju eru þessi fyrirtæki enn með starfsleyfi?