Svona eru áverkarnir á eldislaxinum þegar laxalúsin nær sér á strik í sjókvíunum. Það nær ekki nokkurri átt að þessari aðferð sé beitt við matvælaframleiðslu. Ár eftir ár strengir þessi iðnaður heit um að bæta ráð sitt en aldrei breytist neitt. Almennt er gert ráð fyrir að um og yfir 20% af eldisdýrunum lifi ekki af vistina í sjókvíunum. Vegna lúsarsmits, köfnunar vegna þörungarblóma eða nuddsára á hreistri.

Við skorum á neytendur að sniðganga með öllu eldislax sem er alinn í sjókvíum.

Myndirnar eru af Facebooksíðu skosku dýraverndarsamtakanna ISSF