Norsku froskkafararnir fjarlægðu tvo eldislaxa og sáu fleiri í dag í Hrútafjarðará. Þeir náðu aðeins að skanna lítinn hluta árinnar. Það er 100 prósent öruggt að miklu fleiri strokulaxar eru í ánni.

Stóra spurningin er hvaða sjókvíaeldisfyrirtæki lét(u) þá sleppa frá sér án þess að taka eftir því.

Það kæmi okkur ekki á óvart ef þeir eldislaxar sem hafa verið fangaðir á undanförnum dögum reynist koma úr fleiri en einni sjókví.

Við minnum á að sam­kvæmt lög­um um fisk­eldi varðar stjórn­ar­menn og fram­kvæmda­stjóra allt að tveggja ára fang­elsi ef eld­is­fisk­ur slepp­ur úr fisk­eld­is­stöð þar sem um­búnaði við fisk­eldið hef­ur verið áfátt.

Nú hlýtur að vera komið að þvi að fyirrtækin sem eru eigendur þessara eldislaxa verði svipt leyfum. Heimildin til þess er skýr í 36. gr. laga um fiskeldi: „þegar fiskur sleppur ítrekað“ er grundvöllur sviptingar rekstrarleyfis.

Fyrri ríkisstjórn reyndi að fella þetta ákvæði burt í lagareldisfrumvarpinu sem lagt var fram i fyrravor. Góðu heilli tókst að stöðva að þingið afgreiddi afgreiddi það vonlausa frumvarp


REEL