Hér má sjá norska froskkafara draga fyrsta eldislaxinn sem þeir náðu úr Haukadalsá rétt í þessu.

Fleiri eru komnir á land. Þetta er fjórum kílómetrum ofar í ánni en þeir eldislaxar sem veiddust í síðustu viku.

Það var kominn litur á fiskinn þannig að ljóst er að hann er ekki nýgenginn, líklega hefur hann verið í ánni í að minnsta kosti tvær til þrjár vikur. Nýgenginn lax er spegilsilfraður en dökknar eftir veru í ánni.

Þetta eru afar vond fyrirheit.