Nú í desember drápu starfsmenn Mowi, móðurfélags Arctic Fish á Vestfjörðum, heila sjókví af eldislaxi við Noreg, alls um 178 þúsund laxa, þegar reynt var að ná af þeim laxalús með ferskvatni og hitameðferð um borð í brunnbátnum Ronja Boryö.

Sjókvíaeldisfyrirtækin hafa reynt að halda því fram að þessi meðferð við laxalúsaplágunni í sjókvíunum sé skárri en sífelld notkun eiturefna. Staðreyndin er þó sú að þessi meðferð er helvíti fyrir eldislaxana og drepst oft stór hluti þeirra.

Systurbátur brunnbátsins sem notaður við þennan verknað var á Vestfjörðum síðastliðið sumar og fram á haust á vegum Arctic Fish og Arnarlax við lúsaböðun. Heitir hann Ronja Strand.

Intrafish fjallar um laxadauðann í Noregi (Áskriftar krafist)