Hver vill borða matvöru sem er framleidd með þessum hætti?
Athugið að laxadauðinn í sjókvíunum við Ísland er hlutfallslega umtalsvert meiri en við Noreg.
Þetta er ömurlegur iðnaður þar sem fyrirtækin hafa alltaf hagnað sinn í forgangi frekar en velferð eldisdýranna.
Sjókvíaeldi er óboðleg aðferð við magtvælaframleiðslu.
„Norska matvælastofnunin hefur sektað fiskeldisrisann SalMar um 1,7 milljónir norskra króna, jafnvirði rúmlega 21 milljón íslenskra króna. Mikill fjöldi dauðra og mjög veikra fiska fannst í kvíum fyrirtækisins.
Norska matvælastofnunin og strandgæslan fóru í eftirlitsferð í Þrændalög um miðjan apríl.
Farið var í tíu starfsstöðvar nokkurra fiskeldisfyrirtækja. Hjortøya, starfsstöð SalMar, kom verst út úr eftirlitinu. … Eftirlitsmenn fundu mikinn fjölda dauðra eldislaxa og fiska sem voru með svokölluð vetrarsár.
Norska matvælastofnunin fyrirskipaði SalMar að slátra öllum fiski í einni kví en það var ekki gert. Opin sár í söltu vatni valda fiskunum miklum sársauka sem fyrirtækið er sagt hafa hunsað í gróðaskyni.
Matvælastofnun telur að forsvarsmenn SalMar hafi vísvitandi brotið lög.
„Brotið hefur valdið þjáningum og dauðsföllum á miklu magni af fiski, samtals yfir 64.000 fiskum.“
SalMar á meirihluta í íslenska félaginu Arnarlaxi á Bíldudal og er næststærsta laxeldisfyrirtæki í heimi.“