Á fyrstu átta mánuðum þessa árs hafa rúmlega 3,5 milljónir eldislaxa drepist í sjókvíum við Ísland. Þetta kemur fram í tölum sem voru að birtast á Mælaborði fiskeldis á vef Matvælastofnunar (MAST). Þessi gríðarlegi fjöldi er álíka mikið og drapst af eldislaxi allt árið 2023 en framundan eru mánuðir sem hafa reynst afar þungbærir fyrir eldisdýrin.
3,5 milljónir eldislaxa er á við 50-faldan íslenska villti laxastofnin. Sóunin í í þessum miskunnarlausa iðnaði og fyrirlitningin á velferð eldislaxanna er sláandi.
Ágúst er yfirleitt illskársti mánuðurinn í sjókvíaeldi hér við land. Ekki þó á þessu ári þegar um þrisvar sinnum fleiri eldislaxar drápust í kvíunum en í sama mánuði í fyrra.
Kaldvík, fyrirtækið sem er með sjókvíar á Austfjörðum, var fyrr árinu sektað af MAST fyrir brot á dýravelferðarlögum. Í öðru máli voru brot fyrirtækisins svo alvarleg að MAST kærði það til lögreglunnar. Er sú rannsókn enn í gangi.
Myndirnar eru af eldislaxi í sjókvíum Arctic Fish og af löndun fyrirtækisins á Þingeyri.
