Eftir að hafa stundað kræklingarækt frá 2013 kom Norðmaðurinn Brynjar Berg að 50 milljón dauðum kræklingum á botni Lysefjord 2019. Kræklingurinn reyndist innihalda fimmtán sinnum meira af þungmálminum kopar en eðlilegt gat talist og dagar kræklingaræktunar í firðinum voru taldir.

Brynjar var sannfærður um að þessa gríðarlegu koparmengun og þar með dauða kræklinganna mætti rekja til sjókvíaeldis á laxi skammt undan.

Sjókvíaeldisfyrirtæki húða netapokana með ásætuvörnum sem innihalda kopar einmitt vegna eituráhrifanna sem koma í veg fyrir að gróður og sjávarlífverur geti fest sig á netapokana. Þekkt er að ásætuvarnirnar brotna af á líftíma netapokanna og falla ýmist til botns eða blandast í vatnssúlu fjarrðanna. Þungmálmar eyðast ekki upp í náttúrunni heldur safnast upp og magnast eituráhrif þeirra upp fyrir lífríkið ef notkun þeirra í ásætuvörnunum er heimiluð ár eftir ár.

Brynjar höfðaði mál gegn sjókvíeldissfyrirtækjunum, sem eru í eigu norska fyrirtækisins Alsaker Fjordbruk og bandaríska iðnrisans Cargill, sem eru tugmilljarða fyrirtæki.
Hann tapaði í héraðsdómi en hefur fengið áfrýjanarleyfi til næsta dómsstigs í Noregi þar sem málið verður tekið fyrir nú í desember.

Brynjar hefur nú eytt öllu sparifé sínu, föðurarfi sínum og tekið bankalán til að standa straum af kostnaði við málið.

„Ég hef eytt öllu sem ég á. En ég ætla ekki að hætta. Ég ætla að gera það sem þarf, sama hvað,“ segir hann í þessari mögnuðu fréttaskýringu E24 sem hér fylgir.

„Auðvitað veit ég að þeir búa yfir öllum tiltækum ráðum í heiminum, en það skiptir ekki máli. Þegar maður hefur rétt fyrir sér, kemur ekki til greina annað en að berjast á móti,“ segir Brynjar.

Þetta er veruleiki sem Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra vill nú innleiða í Mjóafirði á Austurlandi en hún hefur tilkynnt að hún vill fá sjókvíaeldi á laxi í opnum netapokum þar til viðbótar við þá íslensku firði sem þessi iðnaður er nú þegar að níðast á.

Þetta gerir hún þvert á vilja um 65 prósent þjóðarinnar sem er á móti sjókvíaeldi en aðeins 14 prósent styðja þennan iðnað samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Gallup.

Þegar aðeins er skoðuð afstaða stuðningsfólks ríkisstjórnarflokkanna er þetta enn meira afgerandi:

  • 80 prósent stuðningsfólks Samfylkingarinnar er á móti sjókvíaeldi, 5 prósent jákvæð.
  • 70 prósent stuðningsfólks Viðreisnar er á móti sjókvíaeldi, 5 prósent jákvæð.
  • 70 prósent stuðningsfólks Flokks fólksins er á móti sjókvíaeldi. 14 prósent jákvæð.

Kæru baráttusystkini, sameinumst til varnar fyrir umhverfi og lífríki Íslands með því að hafa samband við þingmenn, ráðherra og starfsfólk ríkisstjórnarflokkanna, sem þið eruð í talsambandi við, og láta þau vita að ríkisstjórnin þarf að taka í taumana og stöðva þessi óskiljanlegu áform atvinnuvegaráðherra.

– Alt er tapt

Viðtalið við Brynjar Berg birtist í fréttaskýringu norska miðilsins E24.