Hér segir frá því að netapoki Kaldvíkur í Reyðarfirði með um 200 þúsund eldislaxslöxum er rifinn á þremur stöðum. Fyrirtækið hefur ekki hugmynd um hversu margir fiskar hafa sloppið úr.

Þetta er iðnaðurinn sem atvinnuvegaráðherra vill afhenda fleiri firði landsins til að níðast á.

Í umfjöllun Mbl. kemur m.a. fram:

Matvælastofnun barst tilkynning frá Kaldvík í síðustu viku um þrjú göt á nótarpoka einnar kvíar á eldissvæðinu Hafranesi í Reyðarfirði.

Götin voru öll á 16 metra dýpi hlið við hlið langsum eftir pokanum. Fjöldi fiska í kvínni var 193.164 stk. og meðalþyngd 214 grömm. Neðansjávareftirlit var síðast framkvæmt 29. október sl. og var ekkert tjón sjáanlegt í því eftirliti.

„Fyrirtækið taldi ekki líkur á að fiskur hefði strokið og virkjaði því ekki viðbragðsáætlun. Matvælastofnun telur hins vegar að ekki sé hægt að útiloka að fiskur hafi strokið og hefur því hafið rannsókn á málinu,“ segir enn fremur í tilkynningunni.