Fúskið sem viðgengst hjá Arctic Fish og lýst er í úttekt Matvælastofnunar er með ólíkindum. Það er ekki furðulegt að stofnunin skoði nú að kæra fyrirtækið til ríkissaksóknara.

Í frétt Vísis segir m.a.

Hátt í þrjú hundruð frávik hafa orðið hjá fyrirtækjum í land- og sjóvkvíeldi hér á landi á síðustu þremur árum og þar af teljast ríflega sextíu alvarleg. Matvælastofnun íhugar að kæra fyrirtækið Arctic Sea Farm til ríkissaksóknara vegna tveggja alvarlegra mála.

Matvælastofnun hefur birt skýrslu um tvö alvarleg frávik hjá laxeldisstöð Arctic Sea Farm á Patreksfirði síðastliðið sumar. Fyrirtækið er í eigu Arctic Fish ehf. sem er að stærstum hluta í eigu norska fyrirtækisins MOWI sem fer með ríflega helmingshlut og Síldarvinnslunnar sem á 35 prósent.

„Alvarlegu frávikin snúa annars vegar að ljósastýringu og hins vegar að því að það mynduðust göt á kvína,“ segir Hrönn Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar.

Eitt stærsta atvik sinnar tegundar
Samkvæmt skýrslu MAST komu tvö göt á kvína sem í voru 75 þúsund fiskar, einhvern tíma á tímabilinu 8. – 20. ágúst síðastliðið sumar. Þá hafi ekkert neðansjávareftirlit verið með kvínni í 95 daga á síðasta ári.

„Í þessu atviki er talið að 12-13 hundruð eldislaxar hafi sloppið út. Það sem var alvarlegt í þessu atviki er að þetta var kynþroska fiskur sem leitar upp í árnar. Það eru ekki mörg atvik í sjókvíaeldi af þessari stærðargráðu sem hafa gerst áður ,“ segir Hrönn.

… Alls hafa komið upp fimm alvarleg frávik og átta frávik hjá Arctic Sea Farm frá árinu 2019.

Í heild hafa komið upp 62 alvarleg frávik og 2010 frávik hjá fyrirtækjum í landeldi og sjókví frá árinu 2020.