Dauði eldislaxa í sjókvíum við Ísland hefur aldrei verið meiri fyrstu þrjá mánuði ársins en í vetur.
Ný ríkisstjórn hlýtur að taka fast á þessari dýravelferðarmartröð í nýrri löggjöf sem hún hefur boðað að verði lögð fram á Alþingi í haust.
Þessi norska leið SFS við meðferð á eldisdýrum er fyrir neðan allar hellur og er óásættanleg aðferð við matvælaframleiðslu.
Í umfjöllun mbl.is segir m.a.:
Á fyrstu þremur mánuðum ársins fjölgaði dauðum löxum í sjókvíum austan lands og vestan miðað við sama árstíma síðustu tvö ár.
Þetta staðfestir Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldis hjá MAST. Hann segir afföllin vissulega hafa verið mikil í byrjun árs og það skýrist af nokkrum þáttum. Nefnir hann sérstaklega vetrarsár og seiðaútsetningu í of kaldan sjó.
Vetrarsár segir Karl hafa verið til töluverðra vandræða í vetur. Sjórinn í janúar hafi farið niður í núll gráður en í miklum kulda þreytist fiskurinn frekar, fer utan í nótina og fær á sig sár. Baktería sem nefnist moritella kemur gjarnan í slík sár og veldur því að þau versna svo að nauðsynlegt reynist að taka fiskinn út og aflífa hann. …