Morgunblaðið fjallar um niðurstöðu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála:

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi synjun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) frá því fyrir mánuði síðan um að ljá eigendum þriggja sjávarjarða aðild að stjórnsýslumáli um umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði.

Sjávarjarðirnar sem um ræðir eru Austdalur, Brimnes, Dvergasteinn og Selstaðir í Seyðisfirði. Þær, ásamt félagasamtökunum VÁ!, kærðu í lok mars ákvörðun HMS um synjunina en úrskurðarnefndin vísaði frá kæru VÁ!

Félagið Kaldvík hf. áformar að hefja sjókvíaeldi í Seyðisfirði.

…

Í niðurstöðu úrskurðarnefndar kemur fram að við meðferð málsins virðist kærendur hafa fært fram nokkuð ítarlegri rök en áður fyrir aðild að stjórnsýslumálinu.

„Hafa þeir bent á ætluð grenndaráhrif við ráðgert fiskeldi og vísað til þynningaráhrifa frá ráðgerðri starfsemi, annarra umhverfisáhrifa og staðbundinna aðstæðna. Aðild að stjórnsýslumáli vegna ákvörðunar um veitingu byggingarleyfis ræðst af almennum reglum stjórnsýsluréttar um aðild. Gefa þessi sjónarmið tilefni til þess að HMS leggi heildstæðara mat á það hversu sérstaka og verulega hagsmuni einstakir kærendur í máli þessu hafi af úrlausn þess með tilliti til laga um mannvirki ,” segir í niðurstöðunni.