Fundum Alþingis hefur verið frestað til 8. september og er 157. löggjafarþingi því lokið án þess að lagareldisfrumvarpið hafi verið afgreitt.

Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum viljum þakka ríkisstjórnarflokkunum fyrir að setja þetta meingallaða frumvarp til hliðar og Miðflokknum fyrir stuðninginn við þá skynsamlegu niðurstöðu.

Að óbreyttu hefði þetta frumvarp orðið versta löggjöf um fiskeldi frá því sú starfsemi hófst við Ísland. Það er því ómetanlegt gæfuspor að málið var ekki sett á dagskrá.

Þetta frumvarp getur ekki orðið upphafsreitur fyrir nýja löggjöf um fiskeldi þegar málið verður tekið upp aftur. Sérhagsmunir fjögurra fyrirtækja, sem skráð eru í norsku kauphöllinni, á kostnað eldisdýranna, náttúru og lífríkis Íslands mega auðvitað ekki vera grunnur að lögum um þessa ágengu og mengandi starfsemi.

Og kæru baráttusystkini sem hafa tekið þátt í því að aðstoða þá þingmenn sem þurftu að átta sig á því hvað var í húfi, takk fyrir ykkar framlag! ❤️

Þetta tókst, en tæpt var það. Baráttan heldur nú áfram.

Myndin sýnir íslenskan villtan lax á leið að hrygningarstöðvum sínum og var tekin af Einari Fal Ingólfssyni.