Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum vorum meðal bakhjarla sérstakrar sýningar á Hafinu með David Attenborough. Þetta er stórkostleg mynd um undraheim hafsins og af hverju vernd þess er grundvöllur tilveru okkar allra. Við mæum eindregið með því að fara og sjá hana á stóru tjaldi. Þetta er bíóupplifun sem er engu lík.
Að lokinni sýningu og umræðum um efni myndarinnar samþykktu gestir í Smárabíói þessa yfirlýsingu og hvatningarorð:
„Við, gestir á hátíðarsýningu Hafsins með David Attenborough, í Smárabíói 9. maí 2025, hvetjum Alþingi og ríkisstjórn landsins til dáða við vernd hafsins og lífríkisins sem í því býr.
Hafið umhverfis Ísland hefur verið grundvöllur tilveru okkar á þessu skeri frá því að land byggðist, og lögum samkvæmt ber okkur að vernda það.
Við styðjum ráðafólk þjóðarinnar í þeirri vegferð að ná markmiði SÞ um verndun að minnsta kosti 30 prósent hafs og lands fyrir árið 2030, sem samþykkt var á COP15 í Montréal árið 2022, og bjóðum ennfremur fram krafta okkar.
Samningurinn um líffræðilega fjölbreytni kveður sérstaklega á um að til að markmiðinu verði náð þurfum við öll að gera það saman og enn fremur að við náum ekki loftslagsmarkmiðum Parísarsamkomulagsins ef við uppfyllum ekki markmiðið um vernd hafsins.
Við þurfum að hlúa að uppeldis- og búsvæðum nytjategunda og allrar fæðikeðju þeirra. Svo sem kórallana og kóralrifin, þaraskógana, neðansjávarfjöllin og -hryggina. Þá megum við engan afslátt eða veita undanþágur frá lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda.
Heilbrigði hafsins er grundvallaratriði fyrir framtíð okkar allra.“
Í þessum orðum felst meðal annars hvatning til stjórnvalda um að gera grundvallarbreytingu á því fyrirkomulagi sem heimilar sjókvíaeldisfyrirtækjum að losa alla mengun frá starfsemi sinni óhreinsaða beint í hafið í gegnum netmöskvana: fiskaskít, fóðurleifar, lyf, skordýraeitur, örplast og þungmálma. Þetta geta þau í krafti sérlaga sem undanskilja þau frá lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda.
Það er löngu tímabært að afnema þessi lög og skylda þau fyrirtæki, sem stunda sjókvíaeldi á laxi, til að bera sömu ábyrgð á skólpi frá starfseminni og atvinnustarfsemi og íbúabyggð á landi þarf að gera lögum samkvæmt. Auðvitað á þessi stórskaðlegi sóðaskapur ekki að líðast.