Sjókvíaeldi á Íslandi er „sjálfhætt“ sem atvinnugrein ef ekki koma til úrbætur varðandi sleppingar og lúsasmit, sagði Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar og nú forsætisráðherra í viðtali við fréttastofu RÚV í nóvember 2023.
Frá því að Kristrún lét þessi orð falla hafa verið gefin út 32 leyfi fyrir notkun skordýraeiturs og lyfja gegn lús í sjókvíum við Ísland, dauði eldislaxa í sjókvíum hefur aukist á hverju ári, eldislax haldið áfam að sleppa í stórum stíl og sjókvíeldisfyrirtæki verið sektað og kært til lögreglu af Matvælastofnun fyrir ítrekuð brot á dýravelferðarlögum.
Í þessu umhverfi hefur atvinnuvegaráðherra lagt fram lagareldisfrumvarp sem er klæðskerasniðið að hagsmunum sjókvíaeldisfyrirtækjanna. Það yrði stórslys ef frumvarpið verður samþykkt óbreytt.
Í nóvember 2023 var Kristrún gestur í Vikulokunum á Rás 2:
Herða þarf ramma utan um laxeldi í sjókvíum til að koma í veg fyrir stöðu eins og er nú í Tálknafirði þar sem þarf að farga um milljón löxum út af laxalús.
Þetta var samdóma álit gesta í Vikulokunum á Rás 2 í morgun. Þar komu saman Jódís Skúladóttir þingmaður Vinstri grænna, Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar.
Jódís sagðist miður sín vegna fréttanna sem bárust frá Tálknafirði. Staðan væri skelfileg. …
Kristín tók undir orð Jódísar og bætti við að laxeldi geti verið framtíðaratvinnuvegur fyrir byggðir úti á landi, en það segi sig sjálft að greininni verði sjálfhætt ef svona heldur áfram.
Hún sagðist hafa heyrt í íbúum fyrir vestan sem sé miður sín vegna stöðunnar. „Fólk er miður sín yfir sleppingum. Miður sín yfir stöðunni sem er komin upp og jaðrar við dýraníð.”
Hins vegar sé ekki hægt að halda því fram að það eigi að loka fyrir heila atvinnugrein og finna eitthvað annað fyrir byggðarfélögin sem um ræðir.
„En það segir sig sjálft að þessari grein verður sjálfhætt ef svona heldur áfram trekk í trekk. Vegna þess að bæði er þetta vont fyrir rekstur þessara fyrirtækja en svo reynir þetta líka á þanþol samfélagsins.”
Fólk standi frammi fyrir neikvæðri utanaðkomandi umræðu um atvinnulífið í byggðunum.
„Við stöndum á ákveðnum krossgötum þegar kemur að þessari atvinnugrein. Ætlum við að gera þetta vel? Ætla þessi fyrirtæki að sýna að þetta sé hægt og að þetta geti skapað góða stöðu og efnahagslega uppbyggingu á svæðunum, eða er ekki hægt að standa undir eðlilegum starfsháttum? …