Svona fara þau sem stýra sjókvíaeldisfyrirtækinu Kaldvík með eldisdýrin sín. Brjóta á þeim lög um dýravelferð.

Þetta mál snýst um meðferð Kaldvíkur á eldislöxum í Berufirði í janúar.

Við minnum á að enn er ólokið lögreglurannsókn í öðru dýravelferðarmáli. Í því máli kærði Matvælastofnun Kaldvík vegna dauða um milljón eldislaxa sem fyrirtækið setti út í nokkrum áföngum í alltof kaldan sjó í Fáskrúðsfirði í nóvember og desember.

Fyritækið lét sér ekki segjast þegar allir eldislaxarnir drápust í fyrstu útsetningu í kvíarnar heldur endurtók leikinn með sömu ömurlegu afleiðingum.

Einn aðalstjórnandi Kaldvíkur á þeim tíma var Jens Garðar Helgason, núverandi Alþingismaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hafið það bakvið eyrað þegar þingmaðurinn fer að gæta hagsmuna þessa skelfilega iðnaðar á Alþingi.

Jens Garðar hefur varið sjókvíaeldið með þeim rökum að heimamenn myndu aldrei eyðileggja firðina. Svona fara þeir með eldisdýrin sín.

Firðina eru þeir með að láni frá þjóðinni. Auðvitað er þeim ekki treystandi fyrir þeim heldur.

Vísir.is fjallar um málið:

Lögð hefur verið stjórnvaldssekt á Kaldvík að upphæð 500.000 króna vegna brota á lögum um dýravelferð.

MAST segir að fyrirtækið hafi vanrækt að fjarlægja sjúka eða slasaða fiska úr eldiskvíum og aflífa þá eins og skylt er.

Vísir greindi frá þessu máli á sínum tíma, sem varðaði stórfelldan laxadauða sem var í nóvember, desember og janúar í sjókvíum í Berufirði. En þar er fiskeldisfyrirtækið Kaldvík með aðstöðu.

Fyrirtækið þurfti að farga tugþúsundum eldislaxa sem voru ýmist dauðir vegna vetrarsára eða áttu sér enga lífsvon vegna þess hversu illa leiknir þeir voru. Hjá Kaldvík drápust í nóvember 470 þúsund fiskar, í desember 758 þúsund og í janúar 381 þúsund fiskar. Var það vegna þess að hitastig sjávar lækkaði snarpt en undirliggjandi bakteríur geri fiskinn veikan fyrir. …