Kaldvík er fyrirtæki sem hefur eyðandi áhrif á umhverfið, lífríkið og fjármuni.

Viðskiptablaðið fjallar um verðhrun hlutabréfa Kaldvíkur eftir tilkynningar félagsins um taprekstur og yfirlýsingar um að það treysti sér ekki til að standa við ákvæði lánasamninga.

Hluta­bréf lax­eldis­félagsins Kald­víkur hafa lækkað veru­lega á First North-vaxtar­markaðinum á Ís­landi í dag. Hluta­bréfa­verð félagsins er komið niður í 63 krónur á hlut, sem jafn­gildir um 28% lækkun á einum degi.

Á sama tíma lækkaði hlutabréfaverðið einnig í Noregi á Euronext Growth í Osló, þar sem síðasta viðskiptaverð var um 4,56 norskar krónur, sem jafngildir um 10% lækkun frá síðasta dagslokagengi.

Kjarni viðbragðanna virðist þó tengjast kauphallartilkynningu félagsins frá því á miðvikudag, þar sem félagið staðfestir að það hafi óskað eftir undanþágu frá ákveðnum skilmálum lánasamninga og að niðurstöðu sé vænst innan fyrsta ársfjórðungs.

Þegar félag fer formlega í slíkt ferli lesa fjárfestar það gjarnan sem merki um aukna fjárhagslega spennu, jafnvel þó að viðræðurnar gangi „samkvæmt áætlun“.

Slík undanþága er í grunninn beiðni til lán­veit­enda um að slaka tíma­bundið á lána­kvöðum eða breyta mæli­kvörðum, svo félagið teljist ekki brjóta samninga ef rekstrar­tölur eða lykil­hlut­föll þróast verr en gert var ráð fyrir.