Sjókvíaeldisfyrirtækið Kaldvík tilkynnti síðastliðinn föstudag um enn eina frestun á birtingu ársreiknings félagsins.

Í fjárhagsdagatali Kaldvíkur fyrir árið 2026 kemur fram að birta átti ársreikning fyrir síðasta ár þann 30. apríl.

Þann 27. apríl tilkynnti félagið að af því yrði ekki þar sem ekki næðist að klára hann og fá nauðsynlega uppáskrift endurskoðenda fyrir áður kynntan útgáfudag.

Þann 29. apríl var tilkynnt að reikningur yrði birtur 28. maí sem gekk ekki heldur eftir af sömu ástæðum.

Þann 27. maí var sagt að hann yrði birtur 12. júní en þann dag, síðastliðinn föstudag, var tilkynnt um fjórðu frestunina. Nú stendur til að birta ársreikninginn þann 19. júní.

Norska kauphöllinni setti Kaldvík á sérstakan válista í byrjun júní af þessum sökum.

Þessi miklu vandræði benda til þess að endurskoðendur Kaldvíkur eru ekki tilbúnir til að skrifa upp á rekstrarhæfi félagsins.

Skal engan furða. Rekstrartap félagsins undanfarna fimmtán mánuði nemur rúmlega tíu milljörðum króna, eða um 22 miljón krónum hvern einasta dag að jafnaði.

Við skoðun á uppgjöri Kaldvíkur fyrir fyrstu þrjá mánuði þessa árs sést að mun meira hefur streymt af gjaldeyri úr landi en hefur fengist fyrir útflutning félagsins, sem SFS leyfir sér engi að síður að kalla útflutningsverðmæti. Er það með meiri öfugmælvísum seinni tíma. Kaldvík hefur á þessu ári valdið þjóðarbúinu beinum gjaldeyrishalla.

Matvælastofnun sektaði Kaldvík í fyrra fyrir brot á dýravelferðarlögum og vísaði öðru mun umfangsmeira máli vegna brota á sömu lögum til lögreglu. Stendur sú rannsókn enn yfir.

Myndin sýnir flutning á eldislöxum sem drápust vegna vetrarsára í sjókvíum Kaldvíkur.