Kaldvík hefur loks birt ársreikning sinn eftir ítrekaðar frestanir en þegar þannig er staðið að málum er það skýr vísbending um að ekki sé allt með felldu í rekstrinum einsog hefur verið fjallað nokkrum sinnum um á þessum vettvangi.
Það reyndist líka raunin því í kjölfar birtingar ársreikningsins hafa hlutabréf Kaldvíkur verið athugunarmerkt af Nasdaq þar sem í ársreikningnum koma fram athugasemdir um að aðstæður séu fyrir hendi sem gætu skapað vafa um áframhaldandi rekstrarhæfi félagsins (e. going concern).
Hlutabréf laxeldisfyrirtækisins Kaldvíkur hafa verið athugunarmerkt af Nasdaq með vísan til ársreiknings félagsins sem var birtur á föstudaginn. Þar koma fram athugasemdir um að aðstæður séu fyrir hendi sem gætu skapað vafa um áframhaldandi rekstrarhæfi félagsins (e. going concern).
…Kaldvík tapaði 40,5 milljónum evra, eða tæplega 5,9 milljörðum króna árið 2025, samanborið við 30,7 milljóna evra tap árið áður. Tap fyrir skatta nam 46,2 milljónum evra eða um 6,7 milljörðum króna.
Félagið segir að líffræðilegar áskoranir og lág verð á mörkuðum hafi stuðlað að slakri rekstrarniðurstöðu.
…
Rekstrarafkoma (EBIT) fyrir virðirýrnun á lífmassa og framleiðsluskatta var neikvæð um 10,3 milljónir evra eða um 1,5 milljarða króna. EBIT eftir að tekið er tillit til umræddra þátta var neikvæð um 30 milljónir evra eða um 4,3 milljarða króna.
Eignir Kaldvíkur voru bókfærðar á 512 milljónir evra eða um 75,4 milljarða króna í árslok 2025. Þar af var handbært fé um 12,7 milljónir evra eða tæplega 1,9 milljarðar króna. Eigið fé var jákvætt um 284 milljónir evra eða um 42 milljarða króna.
Kaldvík náði í lok mars samkomulagi við lánveitendur um slökun á lánakvöðum fyrir fjárhagsárið 2026. Í ársreikningi félagsins er bent á að gjalddagi vegna helstu lánssamninga félagsins sé í apríl 2028.
Félagið stefnir að áframhaldandi viðræðum við lánadrottna sína og aðra aðila á til að tryggja sér fjármögnun til að styðja við áframhaldandi rekstur á næstu árum. Eins sé horft til þess að það leiði til þess að uppfyllt séu skilyrði um lágmarks lausafjárstöðu samkvæmt lánasamningum.
Kaldvík lauk ríflega 40 milljarða króna fjárhagslegri endurskipulagningu síðasta sumar. Það fól m.a. í sér 33 milljarða króna lánsfjármögnun til 4 ára. Umrædd lánsfjármögnun er í formi sambankaláns sem fjórir bankar koma að DNB, Nordea, Arion Banki og Landsbankinn.
