Þá er komið að þeim þriðja. „The Big Bad Wolf“ í hópi liðsmanna Fjårdakaupa – sjókvíaeldisspilsins þar sem þjóðin tapar, en þó ekki hann: Johann Lakskjær, entreprenör, uppalinn við Harðangursfjörð í Noregi en flóttamaður á Kýpur, London og nú síðast í Dubai vegna leiðinda norskra skattayfirvalda.

Lakskjær hefur skilið eftir sig sviðna firði í Noregi, Skotlandi og Chile og vill koma á framfæri kveðjum og þakklæti til okkar Íslendinga!

Fjårdakaup er nýtt borðspil frá okkur hjá Íslenska náttúrverndarsjóðnum og félögum okkar hjá NASF.

Við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með áfram hér.

Þeir félagar mæta næst allir saman og kynna spilið í sérstöku myndbandi sem við treystum á að þið hjálpið okkur við að koma á mikið flug á Facebook og sem víðast. Það gæti orðið vinsælasta fermingargjöfin í ár!