Við tökum undir hvert orð hér í svari Esterar Hilmarsdóttur við furðulegri lögreglukæru forstjóra Matvælastofnunar og tveggja starfsmanna stofnunarinnar vegna skoðanagreinar sem Ester skrifaði og fékk birta á Vísi 16 júl eftir að Matvælastofnun hafði veitt Arnarlaxi rekstrarleyfi á nokkrum stöðum í Ísafjarðardjúpi, sem hafi verið í trássi við mat Samgöngustofu.
MAST kærði Ester fyrir meiðyrði og aðdróttanir um mútuþægni.
Ester hafnar því að nokkuð saknæmt hafi komið fram í greininni.
Í frétt Vísis er fjallað um svör Esterar:
„MAST er fulltrúi stjórnvalda við útgáfu leyfa og eftirlits með mjög skaðlegum og umdeildum iðnaði sem líklega hefur nú þegar valdið óafturkræfum skaða á íslenskri náttúru og lífríki. Grein mín var sett fram til að vekja athygli á þeim verðmætum sem felst í náttúru Íslands, og því tjóni sem getur hlotist ef fjárhagslegir stundarhagsmunir gagni framar því að halda uppi vörnum fyrir náttúruna. Slík skilaboð eru innlegg í mikilvæga þjóðfélagsumræðu og á fyllilega rétt á sér,“ segir Ester í yfirlýsingu sinni.
Gildisdómur um störf MAST
Hún segir að í greininni sé að finna ákveðinn gildisdóm um hvernig starfsfólk MAST hafi kosið að haga sínum störfum. Hún segir myndlíkingu sína um „skrjáfið í seðlunum“ ekki úr lausu lofti gripna.„Aðeins fáein ár eru liðin frá því fjölmiðlar sögðu frá því að dýralæknir fisksjúkdóma hjá MAST stundaði samhliða verkum sínum fyrir stofnunina að selja í sínum persónulega rekstri bóluefni fyrir eldislaxa til sjókvíaeldisfyrirtækjanna sem hann hafði aðkomu að fyrir hönd stofnunarinnar. Sannanlega stungu þá fyrirtækin í vasa hans. Fréttin batt enda á þessi einkaviðskipti starfsmannsins, en það segir ákveðna sögu um menninguna á MAST að hann hélt þar stöðu sinni,“ segir Ester í yfirlýsingu sinni….
„Eins og áður hefur verið bent á hafa stofnanir ekki sjálfstæðan vilja, á bak við hverja stofnun er starfsfólk sem stýrir stofnuninni og hlýtur það að þurfa að bera einhverja ábyrgð á ákvarðanatöku. Það er nauðsynlegt að stugga við stjórnvöldum og stofnunum, þegar svo ber við, svo að lýðræðið fái að virka eins og það á að gera. Það er hlutverk okkar allra að vera vakandi og hnippa í stjórnvöld og eftirlitsstofnanir til að sinna sínu hlutverki þrátt fyrir þöggunartilburði,“ segir Ester og að eftirlitsstofnanir séu ekki yfir gagnrýni hafnar.
„MAST hefur ítrekað verið í fjölmiðlum þar sem gagnrýni hefur komið fram á vinnubrögð þeirra. Full ástæða er til að velta fyrir sér hvernig starfsfólk MAST kýs að fylgja eftir lögum um fiskeldi og nýta þær skýru heimildir sem þar eru til þess að láta fyrirtækin sæta ábyrgð og taka afleiðingum af því hvernig rekstri þeirra er háttað. Lögin eru sett til að „koma í veg fyrir hugsanleg spjöll á villtum nytjastofnum og lífríki þeirra og tryggja hagsmuni þeirra sem nýta slíka stofna.““
Ester bendir að lokum á að í gær hafi Vísir fjallað um að MAST hefði fundið sjö frávik, þar af fimm alvarleg, í reglubundinni úttekt stofnunarinnar á starfstöð fiskeldisfyrirtækisins Arctic Sea Farm hf. í Dýrafirði í vor.
„Þetta er langt í frá í fyrsta skipti sem alvarleg frávik koma fram við eftirlit MAST og Umhverfisstofnunar með sjókvíaeldisfyrirtækjunum. Ekkert þeirra hefur þó enn verið svipt starfs- eða rekstrarleyfum,“ segir Ester og að í lögum sé skýr heimild til að gera það.
„Eldislaxar hafa sloppið ítrekað úr sjókvíum við landið. Það er óumdeild staðreynd. Fróðlegt væri að heyra skýringar stjórnenda MAST á því af hverju stofnunin hefur ekki nýtt heimildir sínar til að stöðva þessa brotastarfsemi,“ segir hún að lokum.