Fréttastofa RÚV segir frá því að í mars á þessu ári hafi forseti NASCO skrifað bréf til íslenskra stjórnvalda þar sem þau eru hvött til þess að ganga aftur í samtökin, sem berjast fyrir verndun villta laxastofnsins í Norður Atlantshafi. Í fréttinni kemur fram að í bréfinu sé bent á að ógn við villtan lax í Norður-Atlantshafi kalli á samhæfð alþjóðleg viðbrögð og þar skipti þátttaka Íslands miklu máli.

Bréfinu var hins vegar aldrei svarað af hálfu íslenskra stjórnvalda. Það er furðuleg framkoma sem hlýtur að kalla á nánari skýringar af hálfu viðkomandi ráðherra.

„Íslensk stjórnvöld hafa ekki svarað erindi frá NASCO, alþjóðasamtökum sem berjast fyrir verndun villta laxastofnsins í Norður Atlantshafi, þar sem þess er óskað að Ísland gerist aftur aðili að samtökunum. Áratugur er síðan Ísland sagði sig frá NASCO af fjárhagsástæðum.

NASCO eru alþjóðleg samtök sem berjast fyrir verndun villta laxastofnsins í Norður-Atlantshafi. Aðild að samtökunum eiga Noregur, Rússland, Evrópusambandið og Danmörk sem einnig kemur fram fyrir hönd Grænlænds og Færeyja. Bandaríkin og Kanada hafa tillögu- og atkvæðarétt á fundum samtakanna.

Ísland er stofnaðili að NASCO en sagði sig úr samtökunum um mitt ár 2009. Ástæðurnar voru sagðar fjárhagslegar en úrsögnin var liður í umfangsmiklum sparnaðaraðgerðum stjórnvalda í kjölfar bankahrunsins. Samkvæmt upplýsingum frá sjávarútvegsráðuneytinu voru aðildargjöldin að NASCO 9,3 milljónir króna á þeim tíma og annar kostnaður við aðild fjórar milljónir. Íslensk stjórnvöld sögðust vonast til að úrsögnin væri tímabundin og vonir stæðu til þess að ganga aftur í samtökin þegar betur áraði.“