Tveir norskir bændur hafa verið dæmdir í fangelsi og til að gegna samfélagsþjónustu vegna glæpsamlegrar meðferðar á sauðfé. Tugir dýra sem þeir báru ábyrgð á sultu í hel, segir í meðfylgjandi frétt norska ríkissjónvarpsins.

Í nóvember lét sjókvíaeldisfyrirtækið Kaldvík 434.000 eldislaxa drepast þegar þeir voru settir í sjókvíar við sjávarhita undir þremur gráðum.

Mögulega hefði verið hægt að flokka þennan hrikalega dauða sem slys ef Kaldvík hefði ekki endurtekið leikinn í desember og drepið þá 550.000 eldislaxa með því að setja þá í sjókvíar við sömu aðstæður og í nóvember.

MAST er með málið til rannsóknar. Því hlýtur að ljúka með kæru fyrir dýraníð, sakfellingu og fangelsi fyrir þá sem stóðu svona að verki. Annað getur ekki verið.

NRK fjallar um dóminn. Tveir bændur voru dæmdir til samfélagsþjónustu og sekta fyrir að fóðra hvorki né sinna sauðfé sínu. 42 sauðir drápust eða þurfti að aflifa vegna níðingsháttar þeirra. Saksóknari telur dóminn of vægan. Bændunum hefur sömu leiðis verið bannað að halda húsdýr.

Aktor: Dommen er for mild

Straffa er langt mildare enn det aktor Inger Helen Stenevik la ned påstand om.

Ho ville at dei to skulle sone 20 månader i fengsel, der høvesvis seks og fire av månadane var på vilkår.

– Eg meiner det er for milde straffer ut frå praksis til Høgsterett. Eg vil skrive ei innstilling til Statsadvokaten, som har ankekompetanse, seier Stenevik.

Ho legg til at allmennpreventive omsyn er svært viktig.

Dei to bøndene blir også dømde til aktivitetsforbod, som betyr at dei ikkje får ha dyr i ein periode.

Dei to bøndene får mildare straffer fordi dei har vedgått straffskuld.