Íslensk yfirvöld hafa haldið grátlega illa á öllu því sem viðkemur sjókvíaeldi hér við land. Ekki aðeins hafa þau látið hag lífríkisins og náttúrunnar mæra afgangi heldur líka hleypt þessum norsku mengandi stóriðjufyrirtækjum ofan í firði i eigu þjóðarinnar fyrir nánast ekki neitt.
Í Noregi hafa stjórnvöld hins vegar kosið að fara aðra leið. Þar greiða laxeldisfyrirtækin 40% auðlindaskatt.
Í umfjöllun Stundarinnar kemur meðal annars fram:
„Með nýjum auðlindaskatti í Noregi þurfa laxeldisfyrirtæki að greiða 40 prósenta skatt til ríkisins. Skattaprósenta greinarinnar verður því 62 prósent. Enginn slíkur sambærilegur auðlindaskattur er hér á Íslandi auk þess sem laxeldisfyrirtækin greiða ekki fyrir laxeldiskvóta sína til íslenska ríkisins.
…Eins og Stundin greindi frá árið 2020 þá hefðu norsku laxeldisfyrirtækin þurft að greiða um 169 milljarða króna í Noregi fyrir þau 65 þúsund tonna framleiðsluleyfi sem þau höfðu yfir að ráða þá hér á landi. Þetta er reiknað út frá meðalverði á laxeldiskvóta í síðasta uppboði sem norska ríkið stóð fyrir á slíkum kvótum árið 2018. …
Umræðan um þessa auknu skattlagningu á laxeldisiðnaðinn í Noregi hefur verið mikil síðustu daga í norskum fjölmiðlum. Viðskiptablaðið Dagens Næringsliv hefur fjallað talsvert um hana. Í grein í blaðinu í fyrradag sagði stjórnmálaskýrandinn Fritjof Jacobsen að þrátt fyrir þessa auknu skattbyrðar myndu eigendur laxeldisfyrirtækjanna þó hafa „ráð á að kaupa sér Kleenex“ til að þerra tár sín yfir henni.
Jacobsen sagði samt, og tók þá inn byggðasjónarmið á landsbyggðinni í Noregi, að skattlagning gæti haft slæm áhrif á hinar dreifðu byggðir þar í landi. Jacobsen sagði: „Noregur á nokkra vellauðuga viðskiptamenn í laxeldisiðnaðinum sem hafa byggt upp talsvert ríkidæmi vegna aðgangs þeirra að norskum fjörðum. Að þessir aðilar eigi að borga meira til samfélagsins í gegnum skattkerfið er gáfulegt. En laxeldisiðnaðurinn er á sama tíma mikilvægur iðnaður fyrir margar byggðir við strendur Noregs og skap laxeldisrisarnir störf, hagvöxt og borga skatta til nærsamfélagsins.“