Athafnamaðurinn Runólfur Ágústsson er framkvæmdastjóri félagsins Hvítasands sem stefnir að uppbyggingu sjó- og gufubaða í fjöruborði Önundarfjarðar fyrir vestan. Runólfur er líka yfirlýstur aðdáandi sjókvíaeldis á laxi og mun því örugglega fagna því að fá 10.000 tonna sjókvíaeldi í Önundarfjörð með þeim fjölda sjókvía og fóðurpramma sem fylgir þeim iðnaði.
Áætlað óhreinsað „klóakrennsli“ (orð af vefsíðu Landssambands fiskeldisstöðva) frá 10.000 tonna eldi af laxi er á við frá 160.000 manna borg. Í klóakrennsli frá sjókvíaeldi er fiskaskítur, fóðurleifar, örplast, þungmálmar, skordýraeitur og lyf.
Dýrafjörður er næsti fjörður til vesturs frá Önundarfirði. Veiga Grétarsdóttir tók fyrir nokkrum árum myndband af mikilli botnmengun í Dýrafirði vegna sjókvíaeldis, eða það sem sem sérfræðingar kölluðu „bakteríumottu“.
Myndirnar sem hér fylgja sýna hvernig sjó- og gufuböðin við Önundarfjörð gætu litið út með og án sjókvíaeldis í firðinum.
Við erum viss um að Runólfur fyrirgefi okkur að myndirnar með sjókvíunum eru okkar verk.
Þetta er útsýnið sem hann óskar öðrum og er því væntanlega sáttur að búa við sjálfur.



