Stjórnmálamenn réttlæta gjarnan sérhagsmunagæsluna og sérlögin fyrir sjókvíeldisfyrirtækin með því að tala um atvinnusköpun.

Skoðum tölurnar að baki þeirri fullyrðingu.

Um 330 ársverk eru í sjókvíaeldi samkvæmt ársskýrslum fyrirtækjanna sjálfra. Til samanburðar voru ársverk hjá pizzakeðjunni Dominos 233 á Íslandi í fyrra.

Sjókvíaeldi á laxi er opinberlega skilgreint sem „mengandi starfsemi“. Hluti af vondum áhrifum iðnaðarins er erfðamengun sem verður til þegar eldislax sleppur og blandast við villta íslenska laxastofna með þeim alvarlegu afleiðingum að geta villta laxins til að lifa af í náttúrunni minnkar og honum fækkar.

Þetta hefur bein efnahagsleg áhrif á um 2.500 landeigendur, íslenska bændur og fjölskyldur þeirra, sem hafa reitt sig á tekjur af sjálfbærum stangveiðum í margar kynslóðir.

Stjórnmálamennirnir eru þannig með meintri atvinnusköpun á einum stað að eyðileggja störf og verðmæti annars staðar. Og stórskaða íslenskt lífríki um leið.

Á sama tíma er störfum þar sem mannshöndin kemur við sögu að fækka við sjókvíaeldi vegna sjálfvirknivæðingar og aukinnar notkunnar gervigreindar. Í fyrra lokaði til dæmis Arctic Fish starfsstöð sinni á Þingeyri í og lækkaði laun starfsmanna annars staðar. Arnarlax lækkaði líka laun.

Það er lágmarkskrafa að Alþingi gangi svo frá nýjum lögum um lagareldi að það skaði ekki verðmæti og störf annarra íbúa Íslands.
Minnum stjórnmálamennina á það með því að dreifa þessu sem víðast!

k