Af vettvangi við Haukadalsá í nótt, frá Ingólfi Ásgeirssyni stofnanda Íslenska náttúruverndarsjóðsins:
„Klukkan er að ganga 5 að morgni hér við Hauku. Skelfilegir hlutir i gangi hér. Búnir að ná 3 eldislöxum i einum hyl. Náðum ekki nærri öllum. Eru klárlega á annan tug i þessum eina hyl sem við höfum séð i nótt, Símastreng, sem er neðsti veiðistaður Hauku.
Ómögulegt að segja hvað margir eldislaxar leynast i ánni, klárlega tugir. Vonandi ekki hundruðir. Ómögulegt að segja. Hryllingur að sjá! Verður að þræða alla ána. Og árnar í Dölum. Þetta er neyðarástand!“
Þetta mál er rétt að byrja. Enn vitum við ekki annað en að að stór ótilkynnt slepping hefur átt sér stað frá einhverju af sjókvíeldisfyrirtækjunum.
Hræðileg tíðindi.
