Sjókviaeldisfyrirtækin eru ekki í neinni góðgerðarstarfsemi. Þar er hagur hluthafanna alltaf í fyrsta og síðasta sæti. Ekki starfsmanna, byggðarlaganna þar sem þau starfa, og alls ekki umhverfisins, lífríkisins né velferð eldisdýranna.

Vísir fjallaði um málið:

Alls var 84 starfsmönnum sagt upp í tveimur hópuppsögnum sem tilkynnt var um til Vinnumálastofnunar í janúar. Hópuppsagnirnar voru báðar tengdar starfsemi á sviði fiskeldis og gert ráð fyrir að öllum verði boðið starf að nýju. Í síðustu viku bárust fréttir af því að fiskeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic fish á Vestfjörðum ætli að ráðast í breytingar á kjörum starfsfólks í sjódeildum fyrirtækjanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinnumálastofnun um hópuppsagnir í janúar 2026.

„Alls bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í janúar 2026, þar sem 84 starfsmönnum var sagt upp störfum. Uppsagnirnar eru á sviði fiskeldis og verður öllum boðið starf að nýju. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda apríl og maí 2026,“ segir í tilkynningu Vinnumálastofnunar, en lögum samkvæmt ber vinnuveitendum að upplýsa stofnunina um hópuppsagnir.