Áfram syrtir í álinn hjá sjókvíaeldisfyrirtækinu Kaldvík, sem starfar á Austfjörðum. Í upphafi vikunnar sendi félagið frá sér tilkynningu um að það gæti ekki staðið við áður tilkynnta útgáfu á ársreikningi.
Afar sjaldgæft er að skráð félög þurfi að senda frá sér slíkar tilkynningar enda eru þær undantekningalaust merki um að rekstur þeirra er í miklum kröggum.
Vitað var að Kaldvík væri í vandræðum, en mögulega ekki hversu alvarleg þau virðast vera.
Síðastliðin áramót tilkynnti félagið um mikinn taprekstur og upplýsti að það gæti ekki staðið við ákvæði lánasamninga. Hafði þó verið ráðist í verulega hlutafjáraukningu sumarið áður í kjölfar sömu stöðu, að skilyrði lánasamninga voru þá í uppnámi. Sú innspýting dugði greinilega skammt.
Hlutabréfa Kaldvíkur hafa hrunið og eru í frjálsu falli.
Sú tilkynning sem félagið birti í vikunni gefur vísbendingu um að félagið sé mögulega ekki gjaldfært.
Kaldvík var sektað af MAST í fyrra fyrir brot á dýravelferðarlögum og öðru máli vegna alvarlegri brota á sömu löggjöf vísað til lögreglu. Dauði eldislaxa í sjókvíum á Austfjörðum hefur verið hrikalegur árum saman, enn verri en á Austfjörðum þar sem ástandið er þó skelfilegt.
Kaldvík tapaði í fyrra 7 milljörðum og 122 milljón króna, sem jafngildir 19,5 milljónum hvern einasta dag ársins.

