Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum tökum alfarið undir að sjókvíaeldi á laxi í opnum netapokum verði bannað við Ísland.

Í ályktun á nýafstöðnum aðalfundi Landssambands veiðifélaga var kallað eftir því að sjókvíeldisfyrirtækin verið gerð ábyrg fyrir því tjóni sem þau valda og að þeim verði gert skylt að vera með umhverfistryggingar til að bæta skaðann.

Ótrúlegt en satt þá hafa stjórnvöld ekki gengið svo um hnútana að sjókvíaeldisfyrirtækin beri þá ábyrgð skilyrðislaust, þótt enginn vafi leiki á á tjóninu sem þau hafa nú þegar valdið.

Álykt­un LV um sjókvía­eldi var m.a. birt í umfjöllun mbl.is um aðalfundinn:

„Aðal­fund­ur Lands­sam­bands veiðifé­laga hald­inn 26.-27. apríl 2025 for­dæm­ir það hermd­ar­verk sem unnið er á villt­um laxa­stofni Íslands í skjóli stjórn­valda. Við lýs­um ábyrgð á hend­ur stjórn­völd­um fyr­ir al­var­lega at­lögu að ís­lenskri nátt­úru. Við krefj­umst þess að nátt­úru­leg­ir laxa­stofn­ar hafi for­gang, séu verndaðir og hvergi sé gengið á rétt þeirra. Eng­ar mót­vægisaðgerðir eru til sem koma í veg fyr­ir skaðann af opnu sjókvía­eldi. Hvergi í heim­in­um hef­ur tek­ist að reka lax­eldi í opn­um sjókví­um án þess að stórskaða villta lax­stofna. Því legg­ur fund­ur­inn áherslu á eft­ir­far­andi:

a) Í opn­um sjókví­um verði aðeins heim­ilt að ala ófrjó­an lax þar til opið sjókvía­eldi verði bannað með lög­um.

b) Eyja­fjörður, Öxar­fjörður, Seyðis­fjörður, Stöðvar­fjörður og Breiðdals­vík verði friðuð fyr­ir sjókvía­eldi.

c) Eld­is­fyr­ir­tæki verði gerð ábyrg fyr­ir því tjóni sem þau valda og verði m.a. skylt að vera með um­hverf­is­trygg­ing­ar sem bæti þann skaða sem fisk­eldi veld­ur.

d) Að stjórn Um­hverf­is­sjóðs sjókvía­eld­is verði mönnuð að meiri­hluta með fé­lög­um til­nefnd­um af Lands­sam­bandi veiðifé­laga og út­hlut­an­ir á hans veg­um verði m.a. til að bæta fyr­ir þau inn­grip sem sjókvía­eldi hef­ur valdið nátt­úru­leg­um laxa­stofn­um á Íslandi.

Þá lýs­ir aðal­fund­ur Lands­sam­bands veiðifé­laga full­um stuðningi við bar­áttu Seyðfirðinga gegn lax­eldi í firðinum.“