Lesendur þessarar síðu kannast vel við áhyggjur okkar af gríðarlegri notkun skordýraeiturs og lyfja í sjókvíeldi á laxi við Íslands.
Þetta eru útbreiddar áhyggjur eins og kemur fram í frétt Morgunblaðsins:
„Hafrannsóknastofnun hefur bent á í umsögnum til Fisksjúkdómanefndar og Matvælastofnunar að stofnunin lýsi yfir áhyggjum sínum af áhrifum þessara lyfja á villt dýr – sérstaklega krabbadýr – í fjörðum þar sem lyfin eru notuð. Jafnframt er bent á að þessi villtu dýr séu mikilvæg í fæðuvef fjarðanna,“ segir Rakel Guðmundsdóttir, doktor í líffræði og sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun í umhverfismálum sjókvíaeldis og verkefnastjóri burðarþolsmats fjarða í samtali við Morgunblaðið.
Samkvæmt fundargerðum smitsjúkdómanefndar MAST heimilaði stofnunin fimmtán sinnum notkun skordýraeiturs og lyfja vegna lúsafaraldurs í sjókvíaeldi í fyrra:
- 2024 – maí
Salmosan vet (azametifoz) níu sjókvíar á Ytra Kofradýpi í Ísafjarðardjúpi (Háafell) - 2024 – september
Deltamethrin (AlphaMax) í átta sjókvíar – Tálknafjörður - 2024 – september
Deltamethrin (AlphaMax) í tólf sjókvíar í Haukadalsbót – Dýrafirði - 2024 – september
Slice vet (emamectin) lyfjablandað fóður fyrir allar sjókvíar við Eyri – Patreksfirði - 2024 – september
Slice vet (emamectin) lyfjablandað fóður fyrir allar sjókvíar við Vatneyri – Patreksfirði - 2024 – september
Slice vet (emamectin) lyfjablandað fóður fyrir sjö sjókvíar við Kvígindisdal – Patreksfirði. - 2024 – október
Salmosan vet. (azametifos) í 11 kvíar á Steinanesi, Arnarfirði - 2024 – október
Alpha Max vet. (deltametrin)) í baðlausn fyrir allar 14 kvíar á Haganesi, Arnarfirði - 2024 – október
Slice vet. (emamectin) lyfjablönduðu fóðri í allar kvíar (10-11 kvíar) við Tjaldanes, Arnarfirði - 2024 – október
Slice vet. (emamectin) lyfjablönduðu fóðri í 8 kvíar á Sandeyri í Ísafjarðardjúpi - 2024 – október
Slice vet. (emamectin) lyfjablönduðu fóðri í þrem kvíum við Valþjófsdal í Önundarfirði. - 2024 – október
Fiski- og laxalús á regnbogasilungi með Slice vet. (emamectin) lyfjablönduðu fóðri í þrem kvíum á Eldissvæði 1 í Skutulsfirði. - 2024 – nóvember
AlphaMax vet (deltametrin) í baðlausn fyrir allar 11 kvíar á Eyrarhlíð 1, Dýrafirði - 2024 – nóvember
Deltamethrin (AlphaMax) í 11 kvíar Steinanesi, Arnarfirði - 2024 – nóvember
AlphaMax vet og Salmosan (deltametrin) í baðlausn fyrir allar 7 kvíarnar í Haukadalsbót, Dýrafirði