Aukin vöktun laxveiðiáa er mjög jákvætt skref af hálfu Hafrannsóknarstofnunar.
Eins og Ragnar Jóhannsson, sviðsstjóri fiskeldis- og fiskiræktarsviðs hjá Hafró bendir á í frétt RÚV er sérlega mikilvægt að vernda íslenska laxinn, enda er hann ekki eins og hver annar. „Evrópulaxinn greinist upp í þrjár megin greinar, suðurstofninn, norðurstofninn og svo Íslandsstofninn. Svoleiðis að íslenski laxastofninn virðist vera svolítið sérstakur sem hefur eitthvað með söguna að gera og landnám laxins á Íslandi,“ segir Ragnar.
Ragnar segir að í Noregi, þar sem er mikið um fiskeldi, hafi orðið þónokkur erfðablöndun í mörgum ám. Samkvæmt rannsóknum sé að jafnaði um 6% af erfðaefni í norskum ám af eldisuppruna. Þess má geta að samkvæmt nýlegri skýrslu norska vísindaráðsins bera yfir 60% villtra stofna í Noregi einhver merki erfðablöndunar og er um fjórðungur villtra stofna metinn í mjög slæmu ástandi.
„Hér á Íslandi er staðan þannig að það er í rauninni alveg sáralítil blöndun, eiginlega ekki nein. Svoleiðis að við erum með mjög hreina stofna,“ segir Ragnar.“