Við stöndum með Seyðfirðingum. Hægt er að styrkja söfnun þeirra fyrir málskostnaði í baráttunni gegn sjókvíaeldi af iðnaðarskala með því að leggja upphæð að eigin vali inn á reikning Lögverndarsjóð náttúru og umhverfis.

0344-13-030252, kennitala: 630802-2370.

Öll framlög fara óskert til VÁ – félags um vernd fjarðar.

Í þessari grein Péturs Heimissonar læknis, sem birtist á Vísi í dag, er farið yfir ótrúlega stöðu málsins í sveitarstjórn Múlaþings:

„Sveitarstjórn Múlaþings kannaði í byrjun þessa árs viðhorf Seyðfirðinga til laxeldis í firðinum og 3/4 íbúa reyndust því andvígir. Könnunina töldu mörg til marks um vinnu í þágu íbúalýðræðis en annað kom á daginn. Á fundi Umhverfis-og framkvæmdaráðs 27.03. 2023 lögðu fulltrúar minnihlutans fram eftirfarandi tillögu; Umhverfis og framkvæmdaráð lýsir yfir stuðningi við Seyðfirðinga í andstöðu sinni við áformað laxeldi í firðinum. Allir þrír minnihlutafulltrúarnir studdu tillöguna en allir fjórir fulltrúar meirihlutans felldu hana og samtímis þær grímur sem þau hafa sum borið gagnvart íbúum í þessu máli.

Sveitarstjórnarfulltrúar starfa í umboði kjósenda og fá fyrir þeirra tilstilli tækifæri til áhrifa, sérlega meirihlutinn. Múlaþingsmeirihlutinn, D og B segir sig skorta vald til að hindra laxeldi i Seyðisfirði þar sem sveitarstjórn fer ekki með skipulag utan við 115 m frá strönd. Vissulega satt, en rænir þau ekki rétti til að hafa sjálfstæða skoðun og standa með vilja mikils meirihluta Seyðfirðinga. Sveitarstjórn getur sagt forsvarsfólki laxeldisins að hún telji mjög óæskilegt, í raun samfélagslega varasamt, að hefja eldið í ljósi mikillar andstöðu íbúa. Skipulagsstofnun benti á að andstaða Seyðfirðinga gegn eldinu væri jafnvel einsdæmi og greinilegt er að stofnunin telur áhyggjuefni að hefja eldið við þær aðstæður. Það er skiljanlegt, enda er sáttin með mikilvægustu forsendum góðrar líðunar og heilsu. Í fjölskyldum, fyrirtækjum, sveitarfélögum og þjóðfélögum er hún í senn farsælasta kjölfestan og skilvirkasti drifkrafturinn. Ábending Skipulagsstofnunar kom fram þegar andstaða Seyðfirðinga var talin 55%, en ekki ca. 75% eins og nú. Með því að virða ekki þá staðreynd finnst mér Múlaþing, sem kallar sig heilsueflandi samfélag, beinlínis sýna sjálfri lýðheilsunni löngutöngina.“