Á átta dögum hafa hátt í þrjátíu eldislaxar verið háfaðir úr laxastiganum í Blöndu. Þetta er eini staður á Norð-Vesturlandi þar sem hægt er að stöðva þessa fiska og ná þeim. Annars staðar hafa þeir vaðið óhindrað upp á árnar.
Myndbandið sem fylgir þessari frétt er frá vettvangi.
Enginn vafi er á því að þeir laxar sem hafa náðst eru bara toppurinn á ísjakanum. Allar ár við Húnaflóa eru fullar af eldislaxi. Þetta eru manngerðar hörmungar sem voru þó algjörlega fyrirsjáanlegar.
Morgunblaðið fjallaði um málið:
„Tveir dagar voru liðnir frá því að menn á vegum veiðifélagsins höfðu kannað stöðuna. Guðmundur fór með háfinn út í og strax var ljóst að lax var í hólfinu. Samtals háfuðu Guðmundur og Jakob Þór Guðmundsson pabbi hans sjö fiska úr teljarahólfinu, eins og meðfylgjandi myndbönd sýna. Þeir nutu aðstoðar Hildar Kristínar við verkið.
Þegar Sporðaköst yfirgáfu vettvanginn voru sjö eldisfiskar komnir á land. Síðar fór Guðmundur Haukur neðar í stigann og náði þá tveimur til viðbótar. Þessir fiskar voru grálúsugir og var sum lúsin með hala þannig að þeir voru nýkomnir úr sjó.
Fréttir af eldisfiskum hrúgast inn. Tveir veiddust í Húseyjarkvísl í gær. Fjórir nýlegir stórlaxar sáust í Flekkudalsá. Bæði í Miðfjarðará og Vatnsdalsá veiddust svona fiskar í gær. Þá kom einn á land í Búðardalsá.
Það er ógerningur að vita hversu margir laxar eru þegar gengnir í laxveiðiárnar og enn síður hægt að meta hvað er í hafinu fyrir utan Vestanvert landið.
Við opnuðum hæng og hrygnu á staðnum og í hrygnunni voru hrogn og í hængnum svil. Það er eina sem þarf til að skapa næstu kynslóð, hvort sem hún verður norsk, eða norsk–íslensk. Þessir fiskar eru á leið í ferskvatn til að skila af sér afkvæmum.“