Í samtali við Sporðaköst á MBL fer Guðmundur Haukur Jakobsson, varaformaður Veiðifélags Blöndu og Svartár yfir að grafalvarleg staða er uppi í ám landsins en fiskur sem ber öll útlitseinkenni eldislax var fjarlægður úr fiskistiga Blöndu í dag.
Hann er afar ósáttur við viðbrögð stjórnvalda og þá sérstaklega þeirra stofnana sem hafa ábyrgð í málinu og geta tekið ákvarðanir. „Við erum mögulega að fara að upplifa 2023 aftur. Þetta er bara dejavú. Nema að það hefur nákvæmlega ekkert verið gert til að auðvelda okkur að takast á við þetta. Enn eru ekki neinar flutningsleiðir tiltækar og veiðifélögin þurfa að gera þetta allt sjálf,“ segir Guðmundur Haukur og við tökum undir hvert orð.
Í umfjöllun mbl.is segir ennfremur:
… Guðmundur Haukur Jakobsson, varaformaður Veiðifélags Blöndu og Svartár er afar ósáttur við viðbrögð stjórnvalda og þá sérstaklega þeirra stofnana sem hafa ábyrgð í málinu og geta tekið ákvarðanir. „Við erum mögulega að fara að upplifa 2023 aftur. Þetta er bara dejavú. Nema að það hefur nákvæmlega ekkert verið gert til að auðvelda okkur að takast á við þetta. Enn eru ekki neinar flutningsleiðir tiltækar og veiðifélögin þurfa að gera þetta allt sjálf,“ sagði Guðmundur Haukur í samtali við Sporðaköst.
Laxinn sem var háfaður í laxastiganum í Blöndu í dag er um 90 sentímetrar og líkast til úr sjókví. Við fyrstu skoðun má sjá hversu hauslítill hann er en það er eitt af einkennum þessara fiska, en einnig eru tálknbörð, uggar og sporður með klár merki um eldisfisk. Þegar Guðmundur Haukur talar um dejavú vitnar hann til þess að haustið 2023 háfaði hann ásamt fleirum ríflega fimmtíu eldislaxa úr laxastiganum í Blöndu. „Á vissan hátt er gott að vita að hann fór upp stigann, en ekki Ennisflúðina. Sennilega ekki með kraft í það. Vonandi fáum við þá sem ganga í Blöndu til að fara stigann. En öll vinnubrögð í þessu máli eru óboðleg. Það veit enginn hversu margir fiskar eru í sjó eða komnir á neðsta svæðið í Blöndu,“ sagði Guðmundur Haukur.
…
Annar eldislegur lax veiddist fyrir austan um helgina. Í Selfljóti sem á ós í Héraðsflóa sunnan við Vopnafjörð. Sá fiskur er á leið til Hafrannsóknastofnunar til rannsóknar.
Sporðaköst hafa heyrt þá kenningu að um tvenns konar fiska sé að ræða, þegar kemur að eldislegum laxi. Um tvær sleppingar kunni að vera að ræða. Guðmundur Haukur tekur undir þessa kenningu og segist einmitt hafa velt þessu fyrir sér þar sem hann hefur séð fiska sem eru minni en þeir sem virðast ættaðir úr Dýrafirði í þetta skiptið, en engu að síður eldislegir. Þetta mun koma í ljós í rannsóknum Hafrannsóknastofnunar.