Miðvikudaginn 18. mars verður málstofa í Lögbergi um umhverfisglæpi þar sem Paul Larsson, norskur afbrotafræðingur og prófessor við Lögregluháskólann í Osló, flytur erindi og situr fyrir svörum.

Larsson hefur rannsakað glæpi gegn náttúrunni og mun fjalla um störf fyrirtækja í Noregi sem stunda laxeldi í sjó, þar á meðal meðferð þeirra á eldislöxunum og heimild þeirra til að losa allan úrgang frá starfseminni óhreinsaðan í hafið.

Europol, löggæslustofnun Evrópusambandsins, hefur vakið athygli á að skipulagðir glæpir gegn umhverfinu geta verið jafn ábatasamir og viðskipti með fíkniefni.

Environmental crime is highly lucrative – it can be as profitable as illegal drug trafficking – but the sanctions are much lower, and it is harder to detect. These factors make it highly attractive for organised crime groups.

Síðastliðið haust tók Efnahagsbrotadeild Noregs (Ökokrim) þann þátt af brotastarfsemi í fyrsta skipti inn í árlega áhættumatsskýrslu sína og nefndi sérstaklega brotastarfsemi fyrirtækja sem stunda sjókvíaeldi á laxi við Noreg.

Økokrim ser alvorlige lovbrudd i laksenæringen som en av hovedutfordringene i norsk miljøkriminalitet, og anbefaler styrket tilsynskontroll.

Að loknu erindi Larsson verða panelumræður þar sem hann mun sitja fyrir svörum með þátttöku gesta í sal.

Fundarstjóri er Jón Kaldal

Málstofan fer fram í fyrirlestrarsal Lögbergs, L101, Háskóla Íslands, 18. mars og hefst klukkan 17.

Viðburðurinn er í boði Íslenska náttúruverndarsjóðsins og Verndarsjóðs villtra laxastofna.