Finnst ykkur, lesendur góðir, það stjórnmálafólk trúverðugt sem segir að því sé annt um náttúru og lífríki Íslands, um leið og það greiðir götu þessa skelfilega iðnaðar?
„Matvælastofnun hefur nú til rannsóknar hvort eldislaxar hafi sloppið úr sjókví Laxa Fiskeldis við Vattarnes í Reyðarfirði en gat fannst á nótarpoka einnar sjókvíarinnar í dag. Veira sem veldur sjúkdómnum blóðþorra greindist í fyrsta sinn hér á landi í löxum hjá þessu sama fiskeldisfyrirtæki í nóvember í fyrra.
68 þúsund fiskar, samtals um 140 tonn, sem voru í kvínni þar sem veiran greindist voru svæfðir en landssamband veiðifélaga kallaði eftir því að öllum laxi í firðinum yrði slátrað.“