Rifinn netapoki með eldislaxi i Ísafjarðardjúpi. Þetta er sagan endalausa. Samkvæmt frétt Matvælastofnunnar voru í kvínni 115.255 laxaseiði sem um 500g að þyngd að meðaltali.

Enginn hefur hugmynd um, á þessari stundu, hve mörg þeirra sluppu út.

Skv. Tilkynningu MAST:

„Matvælastofnun barst tilkynning frá Háafelli í dag mánudaginn 27. febrúar um gat á netapoka einnar sjókvíar Háafells við Skarðshlíð í Ísafjarðardjúpi.

Gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit á kví C5 og er bráðabirgðaviðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Háafells er gatið um 10 cm x 4 cm  á 10 m dýpi. Í þessari tilteknu kví voru 115.255 laxaseiði sem sett voru í kvínna 5. október 2022. Seiðin eru um 500g að þyngd að meðaltali. Neðansjávareftirlit var áður framkvæmt um miðjan janúar sl. og var netapoki þá heill.

Matvælastofnun hefur fyrirskipað köfun í allar kvíar á eldissvæðinu sem um ræðir til að tryggja að ekki séu fleiri göt á öðrum kvíum. Háafell leggur út net á eldissvæðinu í samráði við Fiskistofu.“