Á þessari ljósmynd má sjá fulltrúa núverandi ríkisstjórnarflokka lyfta grænu flaggi til stuðnings verndunar Seyðisfjarðar fyrir sjókvíaeldi á laxi. Þetta eru Aðalsteinn Leifsson frá Viðreisn, Björn Þorláksson frá Flokki fólksins og Þórunn Sveinbjarnardóttir frá Samfylkingunni.

Myndin er tekin laugardaginn 23. nóvember 2024, á pallborðsfundi sem Landvernd umhverfisverndarsamtök stóðu fyrir viku fyrir kosningar ásamt fleiri náttúruverndarsamtökun til þess að ræða náttúruvernd og umhverfis- og loftslagsmál.

Var þessi afstaða fulltrúa flokkanna, sem áttu síðar eftir að mynda þá ríkisstjórn sem nú fer með völd, í góðu samræmi við sjónarmið sem flokkssystkini þeirra höfðu lýst yfir á fundum sem við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum stóðum fyrir víða um land í nóvember í tengslum við sýningu heimildarmyndarinnar Árna þagna.

Á fundunum voru frambjóðendur allra flokka spurðir einfaldrar spurningar:

Styðjið þið að ekki verði haldið áfram að leyfa sjókvíeldi að vaxa við Ísland fyrr en atvinnugreinin hefur sýnt fram á að hún ráði við núverandi stærð þannig eldislaxar sleppi ekki úr kvíunum og stórfelldur dauði eldislaxa verði stöðvaður?

Nánast undantekningalaust studdu frambjóðendur þessa sjálfsögðu tillögu.

Í gær, svo til upp á dag einu ári frá því að flokksbróðir hennar Aðalsteinn Leifsson lyfti grænum fána á fundi til stuðnings við verndun Seyðisfjarðar, stóð Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra frammi fyrir fundargestum á fundi SFS og boðaði opnun Mjóafjarðar fyrir sjókvíeldi.

Hefur þá eitthvað lagast í þessari starfsemi?

Nei, þvert á móti. Rekstrartap sjókvíaeldisfyrirtækjanna fyrstu níu mánuði ársins nemur 7,8 milljörðum (sem þýðir að þau munu ekki borgar tekjuskatt hér frekar en fyrri ár), þetta ár stefnir í að verða það versta í sögunni þegar kemur að dauða eldislaxa í sjókvíunum, enn verri en metárin 2023 og 2024, og eldislaxar hafa haldið áfram að sleppa í stórum stíl.

Fyrirtækið sem atvinnuvegaráðherra er að færa Mjóafjörð á silfurfati, Kaldvík, hefur verið sektað á árinu af Matvælastofnun fyrir brot á dýravelferðarlöggjöf landsins í einu máli og var kært til lögreglu fyrir brot á sömu lögum í öðru enn alvarlegra máli. Rannsókn á því er ólokið.

Hvað rugl er í gangi? Af hverju þessi sérhagsmunagæsla?